Viðskipti innlent

Fjárfestir segir ESA halda hlífiskildi yfir Íslendingum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Sumarfundur EFTA-ráðherra í Vestamannaeyjum í fyrra. Grundtvig segir Evrópuþingmenn hafa hvatt sig til að vekja athygli ráðherraráðs ESB á framkvæmd hafta á Íslandi. Í því endurspeglist hvernig ESA heimili EFTA-löndum að haga sér.
Sumarfundur EFTA-ráðherra í Vestamannaeyjum í fyrra. Grundtvig segir Evrópuþingmenn hafa hvatt sig til að vekja athygli ráðherraráðs ESB á framkvæmd hafta á Íslandi. Í því endurspeglist hvernig ESA heimili EFTA-löndum að haga sér. Fréttablaðið/Óskar
„Sjáum til hvort ráðherraráð Evrópusambandsins, ný framkvæmdastjórn eða þingmenn Evrópuþingsins eru til í að fallast á íslensku leiðina í aðild að innri markaði Evrópu,“ segir danski fjárfestirinn Lars Grundtvig, í niðurlagi bréfs sem hann ritar Oda Helen Sletnes, forseta ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, annan janúar síðastliðinn.

Grundtvig kærði til ESA framkvæmd gjaldeyrishafta á Íslandi og fékk í desemberbyrjun lokasvar um að ESA myndi loka máli hans þar sem ekki væri að sinni séð að Ísland væri brotlegt við ákvæði Samningsins um evrópska efnahagssvæðið vegna fjármagnshaftanna.

„Eftirlitsstofnunin heldur hins vegar áfram að fylgjast náið með fjármagnshöftunum í yfirstandandi eftirlitsmáli sem ESA opnaði að eigin frumkvæði og kann að taka málið upp eigi sér stað þróun sem málið varðar, á Íslandi eða varðandi lög á Evrópska efnahagssvæðinu,“ segir í bréfi Ólafs Jóhannesar Einarssonar, framkvæmdastjóra málefna innri markaðarins hjá ESA, til Grundtvigs.

Í erindi sínu til ESA vildi Grundtvig meina að þegar hafi verið uppfyllt þau skilyrði sem Seðlabankinn hafi sagt fyrir því að aflétta höftum. 

Þá segir hann í bréfi sínu til formanns ESA nú í byrjun árs að ESA hafi ekki tekið tillit til athugasemda um að höft á Íslandi séu í raun algild. Uppboð Seðlabankans séu gagnslaus, svo sem vegna fæðar þeirra, lágra upphæða sem í boði séu sem og óhagstæðs gengis. Þá sé undanþáguleiðin ekki til þar sem öllum umsækjendum sé hafnað.

Þá segir Grundtvig ESA hafa heimilað áframhaldandi höft eftir „yfirborðskönnun“ á því hvort þau séu í samræmi við EES-samninginn. Höftin séu nú á sjöunda ári og hafi stöðugt verið hert fremur en losuð. Því sé verið að vekja athygli ráðherraráðs ESB, nýrrar framkvæmdastjórnar, þingmanna Evrópuþingsins og fjölmiðla bæði innlendra og erlendra, á stöðu mála. 

„Þessi framvinda mála er til komin vegna þess að þú og samstarfsfólk þitt, hr. Frank J. Büchel og frú Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjórar ESA, hafið heimilað framkvæmdastjóra málefna innri markaðarins, íslenskum ríkisborgara, að starfa eins og framlenging frá Íslandi með þeim afleiðingum að reglur innri markaðar Evrópu gilda ekki í tilfelli Íslands,“ segir Grundtvig.

Hörður Arnarson, þá forstjóri Marel, og Lars Grundtvig, þá eigandi Scanvægt, handsala yfirtöku Marel á Scanvægt árið 2006. Við yfirtökuna varð Grundtvig einn stærsti hluthafi Marel.
Á enn hlut í Marel

Fjárfestingarfélag Lars Grundtvig og fjölskyldu hans eignaðist 18 prósenta hlut í Marel þegar fyrirtækið tók í ágúst 2006 yfir Scanvægt, danskan keppinaut á sviði matvælavinnsluvéla. Lars Grundtvig tók í framhaldinu sæti í stjórn Marel.

Frá því var greint í Markaðnum í nóvember síðastliðnum að breytingar dönskum lögum um erfðarétt þrýstu á um að hann flytti heim aftur peninga sem hann hafði fjárfest utan heimalandsins.

Höfnun Seðlabankans á undanþágubeiðni hans af þeim sökum sagði hann sýna að undanþáguferlið væri sjónarspil. Um síðustu áramót átti Grundtvig Invest enn tæplega 8,4 prósenta hlut í Marel.


Tengdar fréttir

Marel kaupir danskan keppinaut

Marel hf. hefur keypt alla hluti í danska matvælavélaframleiðandanum Scanvægt International. Kaupverðið nemur 109,2 milljónum evra eða tæplega tíu milljörðum íslenskra króna.

Skilið okkur peningunum!

Opið bréf til Más Guðmundssonar seðlabankastjóra frá Lars Grundtvig fjárfesti, föstum innan gjaldeyrishafta.

Staða sem minnir um margt á þjófnað

Seðlabankinn hefur hafnað beiðni danska fjárfestisins Lars Grundtvig um undanþágu frá fjármagnshöftum. Hann telur bankann í blekkingarleik og aðgang Íslands að innri markaði Evrópu í hættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×