Viðskipti erlent

Engin olía í Færeyjum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Borpallurinn West Hercules borar holurnar tvær í Færeyjum.
Borpallurinn West Hercules borar holurnar tvær í Færeyjum. Statoil/Ole Jørgen Bratland
Færeyingar þurfa enn að bíða eftir olíunni. Norska olíufélagið Statoil tilkynnti í morgun að engin olía hefði fundist við borun á Brugdan 2-brunninum um 130 kílómetra suðaustur af eyjunum. Holan hefði reynst þurr. 

Þetta var áttunda holan sem boruð var á landgrunni Færeyja eftir að olíuboranir hófust þar um síðustu aldamót. Borpallurinn West Hercules boraði 4.500 metra undir hafsbotninn en fann hvorki olíu né gas. Hafdýpið var 450 metrar. Með Statoil í verkefninu eru bandaríska félagið ExxonMobil, austurríska félagið OMV og færeyska félagið Atlantic Petroleum. 

Öll nótt eru þó ekki úti þetta sumarið því bora á tvo brunna við Færeyjar í ár. Starfsmenn borpallsins er þegar byrjaðir að gera klárt fyrir seinni holuna, sem nefnd er Súla Stelkur. Hún verður þétt við lögsögumörkin sem snúa að Hjaltlandseyjum. Handan línunnar skammt frá, Bretlandsmegin, hafa fundist olíulindir.

Rúni M. Hansen, framkvæmdastjóri Statoil fyrir Færeyjar og Grænland.
Rúni M. Hansen, framkvæmdastjóri hjá Statoil, segir í viðtali við færeyska netmiðilinn Oljan að niðurstaðan úr fyrri brunninum hafi ekki áhrif á seinni borunina. Hann viðurkennir þó að það séu vonbrigði þegar brunnar reynist þurrir en það sé hluti af starfinu. Stundum finnist olía og stundum finnist hún ekki.


Tengdar fréttir

Herkúlesi ætlað að finna færeyska olíu

Tveir olíubrunnar, sem norska olíufélagið Statoil ætlar að bora í lögsögu Færeyja á þessu ári fyrir þrjátíu til fjörutíu milljarða króna, verða dýrasta verkefni í atvinnusögu eyjanna til þessa. Færeyskir ráðamenn eru fullir bjartsýni.

Færeyingar finna enn meiri olíu í Noregshafi

Færeysk-skoska olíufélagið Faroe Petroleum tilkynnti fyrir helgi að fundist hefðu olía og gas á Pil-svæðinu undan Þrændalögum í Noregshafi. Hlutabréf í félaginu ruku upp um nærri 15%

Aldrei lagt jafn mikið í olíuleit í Færeyjum

Mesta og dýrasta átak til þessa til að finna olíu við Færeyjar er hafið. Borpallur er kominn í lögsögu eyjanna til að bora tvær holur sem kosta munu allt að fjörutíu milljarða króna.

Færeyskar útgerðir færa sig í olíuiðnað

Færeyskir útgerðarmenn, sem áður réru til fiskjar, hafa í auknum mæli snúið sér að olíuútgerð og gera nú út nærri tuttugu sérhæfð skip fyrir olíuiðnað. Olíuútrás Færeyinga skilar nú átta til ellefu prósentum af þjóðartekjum eyjanna. Jan Müller ritstýrir fréttavefmiðli færeyska olíugeirans og hann segir okkur að þótt engin vinnanleg olía hafi ennþá fundist í lögsögu Færeyja starfi samt milli þúsund og fimmtán hundruð Færeyingar við olíuiðnaðinn, margir þeirra erlendis. "Til dæmis eru 250 færeyskir rafvirkjar leigðir út til að vinna í norska olíuiðnaðinum.

Hlé gert á olíuborun við Færeyjar

Statoil og samstarfsaðilar þess, ExxonMobil og Atlantic Petroleum, hafa ákveðið að stöðva tímabundið olíuborun á Brugdan-svæðinu undan ströndum Færeyja. Í tilkynningu frá Statoil kemur fram að þetta sé gert vegna veðurútlits þar sem vetrarmánuðir séu framundan og að færeysk stjórnvöld hafi heimilað frestun til loka árs 2013.

Vissara að Færeyingar verði sjálfstæðir áður en olían finnst

Atvinnumálaráðherra Færeyja, Jóhan Dahl, kveðst handviss um að Færeyingar verði olíuþjóð. Högni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins, segir mikilvægt að Færeyingar fái sjálfstæði áður en olían finnst, - olíufundur geti leitt til þess að Danir verði tregari að slíta sambandinu. Kannanir sýna að Færeyingar skiptast nokkurn veginn til helminga í afstöðunni til þess hvort slíta eigi sambandinu við Dani. En gæti stór olíufundur breytt miklu í sjálfstæðismálunum? Stuðningur Dana nemur um ellefu prósentum af fjárlögum Færeyja og yrði væntalega óþarfur ef olían finnst. Högna Hoydal finnst tryggast að fá sjálfstæðið áður: "Við sjáum hvað er að gerast í Grænlandi. Það er sama mál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×