Djokovic vann eftir ótrúlegan úrslitaleik | Þriðji stórmótssigurinn í röð

Vísir Sport 29. janúar 2012 12:45
Djokovic vann eftir ótrúlegan úrslitaleik | Þriðji stórmótssigurinn í röð
Novak Djokovic vann í dag fyrsta stórmót ársins í tennisheiminum eftir sigur á Rafael Nadal í ótrúlegri úrslitaviðureign Opna ástralska meistaramótsins. Með sigrinum vann Djokovic sitt fimmta stórmót á ferlinum en sinn þriðja titil í Ástralíu frá upphafi.

Viðureignin var ótrúleg - löng og æsispennandi. Djokovic tapaði fyrsta settinu, 7-5, en vann svo tvö næstu nokkuð örugglega, 6-4 og 6-2. Hann var á góðri leið með að vinna fjórða settið en Nadal neitaði að játa sig sigraðan og þvingaði fram oddasett eftir upphækkun, 7-6 (7-5).

Nadal virtist ætla að sigla fram úr í oddasettinu þegar hann komst í 4-2 forystu. Djokovic virtist algerlega búinn á því en náði samt á einhvern óskiljanlega máta að jafna metin og vinna hreint ótrúlegan sigur, 7-5.

Þetta er lengsta úrslitaviðureignin í 107 ára sögu mótsins en hún tók alls fimm klukkustundir og 53 mínútur. Gamla metið settu Spánverarnir Nadal og Fernando Verdasco í undanúrslitum árið 2009. Þetta er einnig lengsta úrslitaviðureign stórmóts í tennis frá upphafi.

Það er ljóst að þessarar viðureignar verður minnst sem einnar þeirra bestu í sögu íþróttarinnar.

Djokovic skráði nafn sitt í sögubækurnar með sigrinum því þar með varð hann aðeins sá fimmti frá upphafi sem vinnur þrjú stórmót í röð. Rod Laver gerði það árið 1969, Pete Sampras endurtók leikinn árið 1994, Roger Federer náði þessum árangri árið 2006 og Nadal árið 2010.

En aðeins Laver hefur unnið fjögur stórmót í röð og á Djokovic því möguleika að jafna það met með því að vinna Opna franska meistaramótið í júní.

Djokovic vann öll stórmót síðasta árs nema Opna franska en aðeins Laver hefur tekist að vinna öll stórmótin á sama árinu - það gerði hann árið 1969.


Jelena Ristic, unnusta Djokovic, studdi sinn mann.
Jelena Ristic, unnusta Djokovic, studdi sinn mann.
Serbinn öflugi var nokkuð mistækur í upphafi sem Nadal færði sér í nyt. Nadal tapaði öllum sex viðureignum sínum gegn Djokovic á síðasta ári og ætlaði sér greinilega að snúa þeirri þróun við. Hann hafði betur í jöfnu fyrsta setti, 7-5.

Djokovic var þó fljótur að koma sér í takt við leikinn og náði undirtökunum með því að vinna næstu tvö settin, 6-4 og 6-2.

Fjórða settið var æsispennandi. Allt var í járnum þar til að Djokovic komst í 0-40 í stöðunni 4-3. En Nadal neitaði að játa sig sigraðan, klóraði sig út úr vonlausri stöðu og jafnaði metin í 4-4.

Þegar þarna var komið voru fjórar klukkustundir liðnar af viðureigninni og byrjað að rigna. Því þurfti að gera nokkurra mínútna hlé til að þurrka völlinn og loka þakinu á Rod Laver-leikvanginum.

Báðir héldu uppgjöf eftir þetta og þurfti því upphækkun til. Þar byrjaði Djokovic betur en sem fyrr gafst Nadal ekki upp og tókst með mikilli baráttu að vinna upphækkunina 7-5 og þar með settið 7-6.

Sem fyrr segir var oddasettið ótrúlegt. Eftir að hafa barist með kjafti og klóm í meira en fjórar klukkustundir virtust báðir, og þá sérstaklega Djokovic, algerlega búinn á því. Flestir voru byrjaðir að reikna með sigri Nadal en þá tók sá serbneski skyndilega við sér, sýndi úr hverju hann er gerður og vann hreint magnaðan sigur. Fagnaðarlætin voru eftir því.

Fleiri fréttir - Sport

Sport 24. maí. 2012 12:15

Þrjár borgir eftir í baráttunni um ÓL 2020

Framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíusambandsins hefur staðfest að Doha og Bakú koma ekki lengur...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 09:00

Sarah Blake komst ekki áfram

Sarah Blake Batman var rúmri sekúndu frá Íslandsmeti sínu í 100 m flugsundi á EM í Debrece...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 07:54

Hrafnhildur aftur í undanúrslit

Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, komst í morgun í undanúrslit á EM í 50 m laug í...  

Meira
Sport 24. maí. 2012 06:00

Óðinn og Ásdís verða með í Dalnum í kvöld

Ólympíufararnir Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH og Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni verða bæði...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 09:13

Sigrún Brá langt frá sínu besta

Sigrún Brá Sverrisdóttir náði sér ekki á strik í 800 m skriðsundi á EM í 50 m laug í Debre...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 08:43

Systurnar komust ekki áfram

Systurnar Eygló Ósk og Jóhanna Gerða Gústafsdætur kepptu báðar í 100 m baksundi á EM í Ung...  

Meira
Sport 23. maí. 2012 08:25

Jakob Jóhann dæmdur úr leik

Jakob Jóhann Sveinsson var dæmdur úr leik í 100 m bringsundi á EM í Ungverjalandi í morgun...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 22:45

Áfengisbann hjá Rússum á ÓL í sumar

Það verður ekkert agaleysi í herbúðum rússneska Ólympíuhópsins í sumar. Búið er að setja a...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 15:45

Hrafnhildur komst ekki í úrslitin

Hrafnhildur Lúthersdóttir hafnaði í fjórtánda sæti í undanúrslitum í 100 m bringusundi á E...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 09:57

Anton náði ekki að bæta Íslandsmetið

Anton Sveinn McKee hafnaði í 20. sæti í 1500 m skriðsundi á EM í Debrecen í Ungverjalandi....  

Meira
Sport 22. maí. 2012 09:04

Eva náði B-lágmarki fyrir London

Eva Hannesdóttir, sundkona úr KR, bætti sinn besta árangur í 100 m skriðsundi á EM í sundi...  

Meira
Sport 22. maí. 2012 08:15

Hrafnhildur setti nýtt Íslandsmet og komst í undanúrslit

Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti í morgun Íslandsmetið í 100 m bringusundi á EM í Debrecen ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 16:36

Íslenska sveitin bætti metið aftur

Ísland hafnaði í áttunda sæti í úrslitum í 4x100 m skriðsundi á EM í Debrecen í Ungverjlan...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 16:00

Eygló komst ekki í úrslitin

Eygló Ósk Gústafsdóttir komst ekki í úrslit í 200 m baksundi á EM í Ungverjalandi. Hún var...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 10:26

Kári Steinn náði í brons á Norðurlandamóti

Kári Steinn Karlsson varð þriðji í 10 km hlaupi á Norðurlandameistarmótinu sem fór fram í ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 10:34

Ásdís náði fjórða sæti í Brasilíu

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir stendur í ströngu þessa dagana en um helgina keppti hún ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:48

Ísland í úrslit á nýju meti

Boðssundssveit Íslands komst í morgun áfram í úrslit í 4x100 m skriðsundi kvenna á Evrópum...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:19

Eygló Ósk í undanúrslit

Eygló Ósk Gústafsdóttir komst örugglega í undanúrslit í 200 m baksundi á EM í sundi sem hó...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 09:05

Jakob Jóhann og Árni Már náðu ekki sínu besta

Undanrásum í 100 m bringusundi er nú lokið á Evrópumeistaramótinu í sundi sem nú fer fram ...  

Meira
Sport 21. maí. 2012 08:00

Fleiri eiga erindi til Lundúna

Alls fara tólf íslenskir sundmenn á EM í 50 m laug sem hefst í Debrecen í Ungverjalandi í ...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:20

Jacky Pellerin ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í sundi

Sundsamband Íslands hefur gengið frá ráðningu á Jacky Pellerin sem landsliðsþjálfara Íslan...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 13:00

Ásdís, Ásgeir, Eygló, Ragna og Þorbjörg fengu öll flottan styrk

Tólf framúrskarandi íþróttamenn fengu í gær úthlutað afreksstyrk úr Samfélagssjóði Landsba...  

Meira
Sport 19. maí. 2012 10:00

Ragna: Í besta formi lífs míns

Ragna Ingólfsdóttir stefnir á að sýna sitt rétta andlit á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sum...  

Meira
Sport 17. maí. 2012 20:00

Geta unnið Usain Bolt ilm með góðum árangri á Mótaröð FRÍ

Mótaröð FRÍ hefst á laugardaginn með keppni á Vormóti HSK á Selfossvelli en Mótaröð FRÍ er...  

Meira
Sport 14. maí. 2012 11:15

Ísland vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu

Íslenska landsliðið í boccia vann til bronsverðlauna í flokki 1 án rennu á Norðurlandamóti...  

Meira
Sport 13. maí. 2012 09:00

Mikið áhorf á bardaga Mayweather og Cotto

Floyd Mayweather og Miguel Cotto mokuðu inn peningum á bardaga sínum um daginn. Alls keypt...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 13:11

Auðunn nældi í silfur og setti heimsmet

Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson vann í dag silfurverðlaun í réttstöðulyftu á Evrópumó...  

Meira
Sport 12. maí. 2012 12:59

Norðurlandamótið í boccia hafið

Norðurlandamót fatlaðra í boccia var sett í Laugardalshöll í morgun. Sveinn Áki Lúðvíksson...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 23:45

Hundur Tebow heitir núna Bronx

Frægðarstjarna Tim Tebow í Bandaríkjunum skín enn mjög skært og hann er afar vinsælt umfjö...  

Meira
Sport 11. maí. 2012 17:15

Stóðu sig betur en þær dönsku og norsku - 24. sæti á EM í fimleikum

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum hefur lokið keppni á Evrópumeistaramótinu í áhaldafi...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 23:00

Breska hnefaleikasambandið með hótanir vegna bardaga Haye og Chisora

Breska hnefaleikasambandið er brjálað yfir því að þeir David Haye og Dereck Chisora ætli a...  

Meira
Sport 10. maí. 2012 15:00

Enginn bardagi hjá Khan | Peterson féll á lyfjaprófi

Það verður ekkert af því að Amir Khan og Lamont Peterson mætist að nýju í hringnum þann 19...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 14:30

Klitschko: Ótrúlegt að þessi bardagi fái að fara fram í Bretlandi

Hnefaleikakappinn Wladimir Klitschko er ekki mjög spenntur fyrir komandi bardaga á milli D...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 12:43

Þormóður fer á ÓL í London

Það var staðfest í dag að júdókappinn Þormóður Árni Jónsson mun taka þátt á Ólympíuleikunu...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 10:45

Usain Bolt náði besta tíma ársins | 9,82 sek.

Heims – og ólympíumethafinn í 100 metra hlaupi karla, Usain Bolt frá Jamaíku, virðis...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 06:30

Biðin loks á enda

Bestu boccia-spilarar landsins verða á meðal þátttakenda á Norðurlandamótinu sem fer fram ...  

Meira
Sport 09. maí. 2012 10:30

Helgi Jónas og Guðríður í Boltanum á X-inu 977

Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Grindavíkur í körfuknattleik karla ve...  

Meira
Sport 08. maí. 2012 22:45

Michael Phelps hættir eftir Ólympíuleikana í London

Bandaríski sundmaðurinn Michael Phelps hefur gefið það út að hann ætli að hætta eftir Ólym...  

Meira
Sport 08. maí. 2012 12:15

Haye og Chisora ætla að slást á Upton Park

Það gleymist seint er hnefaleikaköppunum Dereck Chisora og David Haye laust saman á blaðam...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 17:03

Einar Daði bætti sinn besta árangur á Ítalíu

Einar Daði Lárusson úr ÍR náði þriðja sæti á alþjóðlegu tugþrautarmóti á Ítalíu sem lauk n...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 12:52

Mayweather heimsmeistari í léttmillivigt

Floyd Mayweather yngri, varð í gærnótt heimsmeistari í léttmillivigt en hann sigraði Migue...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 11:30

Tennislandsliðið tapaði öllum leikjum sínum í Davis Cup

Ísland hefur lokið keppni í Davis Cup í tennis þetta árið en liðið tapaði fyrir Möltu, 2-1...  

Meira
Sport 06. maí. 2012 11:00

Einar Daði í fimmta sæti á Ítalíu

Einar Daði Lárusson, ÍR, er meðal keppenda á fyrsta tugþrautarmóti sumarseins sem fer fram...  

Meira
Sport 04. maí. 2012 14:45

Tíu íslenskar stelpur á leiðinni á EM í áhaldafimleikum í Brussel

Fimleikasamband Íslands sendir tíu keppendur á Evrópumeistaramót kvenna í áhaldafimleikum ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Djokovic vann eftir ótrúlegan úrslitaleik | Þriðji stórmótssigurinn í röð