Viðskipti innlent

Björn Leifsson hverfur úr hluthafahópi DV

Samúel Karl Ólason skrifar
Björn Leifsson ætlar að einbeita sér að rekstri líkamsræktarstöðva sinna.
Björn Leifsson ætlar að einbeita sér að rekstri líkamsræktarstöðva sinna. Vísir/GVA
Þorsteinn Guðnason, stjórnarmaður í DV ehf, mun kaupa 4,42 prósenta hlut Björns Leifssonar í DV. Í tilkynningu frá Þorsteinni segir að þeir séu sammála um að það sé útgáfufélaginu til hagsbóta að Björn og Laugar ehf. hverfi úr hluthafahópnum.

„Markmið okkar sem eigum meirihluta í DV er að treysta rekstur þess og bæta í þegar kemur að útgáfustarfseminni og leitast við að skapa frið um starfsemina. Umrædd viðskipti eru liður í þeirri vitleitni," segir Þorsteinn Guðnason í tilkynningunni.

„Þjóðin hefur nú fengið að sjá hvern mann Reynir Traustason hefur í raun og veru að geyma og ég hef engu við það að bæta," segir Björn Leifsson, sem ætlar nú að einbeita sér að rekstri líkamsræktarstöðva sinna.

Félag Björns, Laugar ehf., keypti í síðustu viku umrætt hlutafé af Ólafi Magnússyni, fyrrverandi stjórnarformanni DV og fyrirtæki hans kú ehf. Einnig keypti hann af Catalina ehf., Innrömmun Sigurjóns ehf. og Víkurrós ehf.

Björn gaf það út eftir kaupin að það eina sem hann ætlaði sér væri að koma Reyni Traustasyni úr ritstjórastólnum. Síðan myndi hann selja hlut sinn.

Þá segir í tilkynningunni að það sé vilji stærstu eigenda hlutafjár í DV ehf að stjórn fyrirtækisins endurspegli raunverulegt eignarhald í félaginu. Framhaldsaðalfundur DV ehf. fer fram á morgun.


Tengdar fréttir

Lofar fjörugum aðalfundi DV

Í dag verður aðalfundur hlutafélags DV haldinn, þar sem meðal annars verður kosið í nýja stjórn félagsins

Slagnum um eignarhald DV frestað um eina viku

Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir deilur innan eigendahóps DV ehf. hljóta að enda með ósköpum. Hann sakar stjórnarformann félagsins um lögbrot. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður gefur lítið fyrir ásakanirnar og segir Reyni hafa stundað bolabrögð á aðalfundi félagsins í gær.

Kaupir hlut í DV og vill Reyni út

Laugar ehf. hafa keypt 4,42 prósent hlut í DV ehf. en Laugar eru í eigu Björns Leifssonar oft kenndur við World Class.

Reynir viðurkennir að hafa fengið lán frá Guðmundi

„Það er rétt að félag í eigu Guðmundar lánaði mér til kaupa á hlutafé rétt eins og Gísli Guðmundsson, kenndur við B&L, veitti slíkt lán sem síðan fór inn í einkahlutafélagið Ólafstún,‟ segir Reynir á fésbókarsíðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×