Viðskipti innlent

1,3 milljarðar verið greiddir vegna láns SPRON til Exista

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Dómarar í SPRON-málinu afléttu í dag trúnaði sem lögmaður Klakka, áður Exista, sagði ríkja um samkomulag félagsins við eignasafn Seðlabanka Íslands.
Dómarar í SPRON-málinu afléttu í dag trúnaði sem lögmaður Klakka, áður Exista, sagði ríkja um samkomulag félagsins við eignasafn Seðlabanka Íslands. Vísir/GVA
Ef marka má það sem komið hefur fram við aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn fyrrverandi forstjóra SPRON og fjórum fyrrum stjórnarmönnum sjóðsins vegna tveggja milljarða króna láns SPRON til Exista þann 30. september 2008 þá hafa 1,3 milljarðar verið greiddir til baka vegna lánsins.

Um þrjár greiðslur er að ræða: 70 milljónir sem fyrrverandi stjórnarmenn og sparisjóðsstjóri SPRON sömdu um að greiða slitastjórninni svo fallið yrði frá skaðabótamáli á hendur þeim, 300 milljónir sem slitastjórnin fékk við nauðasamninga Exista og svo 930 milljónir sem Klakki, áður Exista, greiddi eignasafni Seðlabanka Íslands eftir að slitastjórn SPRON lauk störfum.

Klakki samdi við eignasafnið vegna VÍS

Var greiðsla Klakka innt af hendi vegna riftunar-og skaðabótamáls sem slitastjórn SPRON höfðaði gegn VÍS. Klakki og VÍS gerðu með sér samkomulag þess efnis að tryggingafélagið myndi ekki bera neinn skaða vegna málsins og samdi Klakki því við eignasafn Seðlabankans vegna þess.

Málið hefur nú verið fellt niður en allt það sem snýr að greiðslu Klakka til eignasafnsins kom fram við vitnaleiðslur yfir Hrafnkeli Óskarssyni, lögmanni Klakka, fyrir dómi í dag.

Hrafnkell bar fyrir sig trúnaði um samkomulag Klakka við eignasafn Seðlabankans þegar Daníel Isebarn, einn verjanda í málinu, innti hann eftir því hvort að Klakki hefði greitt eitthvað vegna lánsins.

Dómarar afléttu trúnaði

Um þetta spannst nokkur umræða og óskaði verjandinn eftir úrskurði dómara þess efnis að trúnaðinum yrði aflétt. Dómarar gerðu þá hlé til að ráða ráðum sínum og úrskurðuðu svo að Hrafnkell skyldi svara spurningu Daníels.

Hann upplýsti þá að Klakki hefði greitt eignasafni Seðlabankans vegna kröfunnar sem slitastjórn SPRON hafði gert á VÍS. Virtust þessi tíðindi koma flestum í dómsal á óvart, þar á meðal ákæruvaldinu.

Pétur Guðgeirsson, dómsformaður, spruði verjandann hvort hann vildi spyrja eitthvað frekar út í greiðsluna og sagði Daníel það þá “freistandi” að fá að vita upphæðina. Hrafnkell gaf hana þá upp, áðurnefndar 930 milljónir króna.

Krafan nú fjórir milljarðar

Áður hafði komið fram fyrir dómi þegar Bjarki Már Baxter, lögmaður slitastjórnar SPRON, bar vitni að hann teldi nettó útistandandi kröfu vegna láns SPRON til Exista vera fjóra milljarða.

Spurður út í afdrif kröfunnar á hendur VÍS kvaðst hann ekki vita annað en að hún hefði verið sett á frest þar til lyktir fengust í það mál sem aðalmeðferð fer nú fram í.

Guðmundur Hauksson, fyrrverandi forstjóri, og fyrrum stjórnarmennirnir Rannveig Rist, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guðmundsdóttir og Ari Bergmann Einarssyni eru í málinu ákærð fyrir umboðssvik. Þau neita öll sök.

Í ákæru er þeim gefið að sök að hafa farið út fyrir heimildir sínar með láninu SPRON til Exista. Þá vill saksóknari meina að þau hafi stefnt fé SPRON í verulega hættu og að lánið hafi ekki verið greitt til baka. Því megi telja að það sé sparisjóðnum að fullu eða að verulegu leyti glatað, eins og segir í ákæru.

Var fyrrnefnd málshöfðun slitastjórnar SPRON á hendur VÍS tilkomin vegna “snúnings” sem fjallað er um í ákæru og snýr að því að VÍS lánaði 4 milljarða til Exista þann 18. september 2008.

Fjórum dögum síðar var það lán framlengt til 29. september og svo aftur framlengt þá um einn dag. Þann 30. september endurgreiðir Exista svo lánið til VÍS en sama dag koma 2 milljarðar frá VÍS inn í SPRON. Sparisjóðurinn á svo að hafa lánað þá milljarða til Exista.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×