Innlent

„Þetta er fullkomin valdníðsla“

Samúel Karl Ólason skrifar
Hluti níumenninganna svokölluðu.
Hluti níumenninganna svokölluðu. Vísir/GVA
Níumenningarnir úr Gálgahrauni segja forsögu mótmælanna 21. október 2013 fara fram á sýknu í Hæstarétti. Ákæruvaldið segir aðgerðir lögreglunnar þann dag hafa verið nauðsynlegar og að lögreglan hefði ekki farið fram að offorsi.

Verjendi níumenninganna segir aðgerðir lögreglu hins vegar hafa verið ólöglegar.

Málflutningur dómsmálsins vegna mótmælanna í Gálgahrauni fór fram í Hæstarétti í morgun.

Áður höfðu þau Gunnsteinn Ólafsson, Kristinn Guðmundsson, Viktoría Áskelsdóttir, Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Anna María Lind Geirsdóttir og Tinna Þorvaldsdóttir verið dæmd til að greiða 100 þúsund krónur í sekt og 150 þúsund krónur í sakarkostnað.

Sjá einnig: Níumenningarnir í Gálgahrauni dæmdir til sektargreiðslu.

Daði Kristjánsson, saksóknari.Vísir/GVA
Nímenningarnir voru sakfelldir fyrir að brjóta gegn 19. grein lögreglulaga, en samkvæmt ákvæðinu er fólki skylt að hlýða fyrirmælum lögreglu.

Aðgerðir lögreglunnar sagðar nauðsynlegar

Daði Kristjánsson, saksóknari, rifjaði í fyrstu upp feril málsins í héraðsdómi. Þá sagði hann að þörf hefði verið á lögreglunni þennan dag. Hann sagði að mótmælendur hefðu ekki virt lokanir og vera þeirra hefði myndað slysahættu og truflað þá vinnu sem fór fram í Gálgahrauni þann dag.

Hann sagði að lögreglan hefði ekki farið fram af offorsi og það hefði ekki verið markmiðið að brjóta á fólki til að koma fram einhverjum skoðunum. Þau níu sem voru ákærð voru handtekin tvisvar sinnum þennan dag og Daði sagði málið snúa að seinni handtökunni.

Sjá einnig: Segja valdbeitingu lögreglu tilefni til vægari refsinga

Fara fram á sýknun

Níumenningarnir fara fram á sýknun eða mildustu mögulegu refsingu. Skúli Bjarnason, hæstaréttarlögmaður, sagði málsvörn þeirra byggja á að aðgerðir lögreglunnar hefðu verið ólöglegar. Hann sagði að þarna hefði ekki verið að tryggja eðlilega vegagerð, heldur hefði þriggja kílómetra langt hraun verið eyðilagt á einum degi.

Skúli Bjarnason, verjandi níumenninganna.Vísir/GVA
Skúli sagði að þarna hefði verið framkvæmd handtaka á prúðum borgurum sem jafnvel væru komin á áttræðisaldur. Þau hefðu svo verið nauðflutt í gegnum tvö sveitarfélög og lokuð inni í fangaklefum. Hann sagði myndir af vettvangi sýna svartan vegg lögreglumanna og sagði að þar hefðu verið 60 lögreglumenn á móti 15 mótmælendum.

„Er þetta eðlilegt í réttarríki?“ sagði Skúli. „Þetta er fullkomin valdníðsla.“

Sjá einnig: „Þetta var einfaldlega líkamleg árás“

„Stormsveit lögreglunnar“

Skúli sýndi einnig mynd af veginum eins og hann á að vera þegar framkvæmdum er lokið. Með kaldhæðnistón sagði hann að þetta væri það sem bráðnauðsynlegt hefði verið að reisa fyrir þá tvö þúsund íbúa sem ættu heima á Álftarnesi.

Þá sagði hann að tvö dómsmál hefðu verið í gangi til að skera úr um lögmæti framkvæmdanna í Gálgahrauni þegar mótmælin áttu sér stað 21. október 2013. „Það voru tvö alvöru dómsmál í gangi þegar 60 manna stormsveit lögreglunnar var sigað á þetta fólk.“

Sjá einnig: Fannst mjög ógnandi að líf sitt og fjör væri í höndum krakka

Skúli sagði að lögreglan hefði átt að tala við báða aðila og leita sátta. Að lögreglan hefði ekki átt að gera „stórkallalega leiftursókn“ sem hefði komið öllum að óvörum. Hann sagði að í fyrstu, þegar borðum og keilum til merkis um bannsvæði, hefði verið verið komið fyrir í kringum mótmælendur.

Svo hafi borðar verið strengdir í kringum þau og lögreglan hefði gert ógnandi atlögu að þeim og handtekið. Skúli sagði að þau hefðu ekki tök á því að bregðast við.

Sjá einnig: Segir borðann hafa verið strengdan í kringum sig

Frá Hæstarétti í morgun.Vísir/GVA
Fordæmalaust mál

Þar að auki sagði Skúli að nú stæðu yfir fimm bótamál, þar sem mótmælendur frá Gálgahrauni hafi höfðað mál gegn lögreglunni fyrir ólögmæta handtöku og meðferð. Hann sagði að hugsanlega væri tilefni til að Hæstiréttur myndi fresta ákvörðun refsinga þar til búið væri að útkljá þau dómsmál.

Að lokum sagði Skúli að mál þetta væri fordæmalaust hér á Íslandi og það hefði fordæmi varðandi valdbeitingu lögreglunnar til framtíðar.

„Einhverjir myndu nú segja að það væri gott að setja þeim mörk,“ sagði Skúli og rifjaði þar að auki upp atvik frá síðustu helgi þar sem lögreglumaður skipaði Halldóri Bragasyni að taka ekki myndband af sér.

Sjá einnig: Blöskrar viðbrögð lögreglu: „Rútuþjáningar íbúa í 101 halda áfram“

Hann sagði 19. grein lögreglulaga ekki vera algilda. Hún hljóðar svo: Almenningi er skylt að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur, svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.

„Ef að lögregluþjónn segir okkur að stökkva fyrir björg? Eigum við þá að gera það?“

Níu mál tekin fyrir í einu

Ræður þeirra Daða og Skúla fjölluðu um mál Önnu Maríu Lind Geirsdóttur, nr. 812-2014. Þegar því var lokið þurfti að ganga frá átta málum til viðbótar. Ritari dómsins las upp upplýsingar um næsta mál og saksóknari fékk orðið.

Daði stóð upp og sagði: „Ég vísa til málflutnings í máli 812-2014. Geri sömu kröfur og legg málið fyrir dóm.“ Þá stóð Skúli upp og sagði í megin dráttum það sama. Þetta þurfti að gera alls átta sinnum og tók það líklega um tíu mínútur til korter.


Tengdar fréttir

Málsmeðferð í Gálgahraunsmáli í samræmi við lög

"Lögin gera nú bara beinlínis ráð fyrir því að lögreglustjórar sem fara með rannsókn mála fari jafnframt með ákæruvald í þeim,“ segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tónleikar til styrktar níumenningunum

Haldnir verða tónleikar í Háskólabíói á miðvikudag til styrktar níumenningunum sem á dögunum fengu dóm í Gálgahraunsmálinu.

Hagsmunir Hraunavina horfnir

Mál Hraunavina og ferna annarra náttúruverndarsamtaka gegn Vegagerðinni vegna framkvæmda við nýjan Álftanesveg í Gálgahrauni, hefur verið vísað frá.

Samstöðufundur um náttúruvernd og tjáningarfrelsi á Íslandi

Þriðjudaginn 21. október kl 17.00 verður samstöðufundur náttúruverndarsinna og mótmælenda á Íslandi haldinn við Garðastekk við Álftanesveg undir nafninu Gálgahraun – samstöðufundur um náttúruvernd og tjáningarfrelsi á Íslandi.

Gálgahraun til Mannréttindadómstólsins

Telja kærendur að brotið á rétti Hraunavina til raunhæfra úrræða fyrir dómstólum og réttlátrar málsmeðferðar fyrir hönd félagsmanna sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landvernd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×