Erlent

"Ástandið er skelfilegt“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson.
Sveinn Rúnar Hauksson. vísir/gva
Yfir níutíu Palestínumenn hafa fallið í árásum Ísraelshers og á sjötta hundrað eru særðir. Stór hluti þessa hóps eru börn. Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Ísland-Palestína segir ástandið skelfilegt. Hann telur árásirnar beinast gegn óbreyttum borgurum til að vekja skelfingu og ótta og lýsir árásum Ísraelsmanna sem þjóðarmorði. 

„Það eru ofboðslega sterk ítök Ísraelsríkis á Bandaríkjaþingi og hefur gríðarlega öflug áhrif. Obama þyrfti ekki annað að gera en að lyfta símanum sínum, hringja í Netanyahu Ísraelsforseta og jafnvel bara anda í símann,“ segir Sveinn. 

Hundruð sprengja skekja Gazasvæðið á hverri mínútu sem líður en átökin sem geisa þar eru þau allra verstu síðan í átta daga stríði Ísraels- og Palestínumanna árið 2012.  Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var kallað saman í dag og sóttu allir fimmtán meðlimir öryggisráðsins fundinn. Ban Ki-Moon framkvæmdastjóri SÞ fordæmir árásirnar og segir að nauðsynlegt sé að bregðast samstundis við ástandinu.

„Tilfinningin sem fólkið fær er sú að það er lokað inni í risastóru fangelsi. Sprengjum rignir á það og það getur enga björg sér veitt. Það getur ekki komist burt og það er alls staðar skotið á það.“

Sveinn á marga góðkunningja á svæðinu sem hafa lýst ástandinu fyrir honum. Þeir segja það hræðilegt og jafnvel enn verra en stríð Ísraels- og Palestínumanna árið 2012. „Ástandið er skelfilegt. Alveg hræðilegt og staðfesti félagi minn það símleiðis í dag. Mér verður hugsað til kollega minna og vina sem vinna á sjúkrahúsum þarna. Hugurinn er stöðugt þarna niðurfrá og það er ekki hægt að hugsa um neitt annað. Ég vildi bara að ég gæti verið þarna,“ segir Sveinn.

Vopn Palestínumanna eru talin heldur frumstæð og er þeim grandað nánast samstundis af Ísraelsher. Þau hafa engu manntjóni valdið og segir Sveinn að þarna sé ekki um stríð tveggja fylkinga að ræða.

„Tækni Palestínumanna er svo gjörsamlega ólík þeirri tækni sem Ísraelsmenn búa yfir. Vopnin eru frumstæð og jafnvel heimatilbúin. Ísraelsher notar dróna og F16, þeir sprengja upp bíla, heimili, skjóta úr lofti og af sjó.Það er bara mikið rangnefni að kalla þetta stríð tveggja aðila. Þetta er stríð gegn palestínsku þjóðinni.“


Tengdar fréttir

Íslendingar fari ekki til Gaza

Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ferðalögum til Gaza vegna ótryggs ástands þar.

Öryggisráð SÞ kallað saman vegna átaka á Gaza

Ban Ki-Moon, aðalframkvæmdastjóri SÞ, fordæmir árásirnar og biður Ísraelsforseta að virða alþjóðlegar skuldbindingar um vernd óbreyttra borgara en þau linnulausu átök sem geisa nú á Gazasvæðinu virðast ætla að stigmagnast frá degi til dags.

Tugir liggja í valnum eftir loftárásir

Spennan heldur áfram að magnast á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna á Gazasvæðinu, en tuttugu og sjö liggja nú í valnum og yfir hundrað eru særðir eftir hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna í dag.

Ísraelar boða hertar árásir á Gaza

Að minnsta kosti 35 hafa fallið í árásum ísraelshers á Gaza undanfarna daga, þeirra á meðal konur og börn. Enginn hefur fallið í árásum Hamas á Ísrael.

Flytja hermenn að Gaza

Spenna hefur verið mikil í Ísrael og Palestínu eftir morð þriggja ísraelskra pilta og 17 ára drengs frá Palestínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×