Viðskipti innlent

Vill fimmmenningana í fangelsi vegna lánsins til Exista

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sakborningar í málinu í dómssal þegar aðalmeðferð hófst á mánudaginn.
Sakborningar í málinu í dómssal þegar aðalmeðferð hófst á mánudaginn. Vísir/GVA
Munnlegur málflutningur í SPRON-málinu svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Guðmundur Hauksson, fyrrum forstjóri SPRON er ákærður í málinu ásamt fjórum fyrrverandi stjórnarmönnum sjóðsins, þeim Ara Bergmann Einarssyni, Jóhanni Ásgeir Baldurs, Margréti Guðmundsdóttur og Rannveigu Rist.

Fimmmenningarnir eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna tveggja milljarða króna láns sem SPRON veitti Exista þann 30. september 2008. Telur sérstakur saksóknari að ákærðu hafi misnotað aðstöðu sína þegar lánið var veitt, þau hafi farið út fyrir heimildir sínar og stefnt fé sjóðsins í verulega hættu. Fer ákæruvaldið fram á að sakborningarnir verði allir dæmdir í fangelsi.

Í málflutningsræðu sinni sagði Birgir Jónasson, aðstoðarsaksóknari, ákæruvaldið byggja á því að lánareglur SPRON hafi verið brotnar þegar stjórnin samþykkti lánið til Exista.

Þá verði ekki ráðið af samtímagögnum málsins, og vísaði Birgir sérstaklega í fundargerð fundarins þar sem lánið var samþykkt, að önnur gögn en lánsbeiðnin hafi verið lögð fram og hafi stjórnarmennirnir undirritað lánið “athugasemdalaust.”

Lánið veitt án nægra athuguna

Að mati ákæruvaldsins hafi lánið verið veitt án þess að kanna sérstaklega stöðu og greiðslugetu Exista. Þá hafi lánið verið mjög óvenjulegt þar sem um var að ræða eina lánið sem samþykkt var af stjórn SPRON á árunum 2007 og 2008. Þar að auki sé um mjög stórt lán að ræða miðað við fjárhag sparisjóðsins. Ákærðu hafi því brugðist þeim skyldum sínum sem á þeim hvíldu samkvæmt lánareglum sjóðsins og reglum SPRON um störf stjórnar og forstjóra.

Birgir gerði svo einnig að umtalsefni alvarlega stöðu á fjármálamarkaði sem rædd var á stjórnarfundinum þar sem lánið var samþykkt. Segir í fundargerðinni að staðan sé sú “versta sem uppi hefur verið í áratugi.” Degi áður hafði ríkið yfirtekið Glitni og sagði saksóknari mikla óvissu hafa verið á fjármálamörkuðum og lausafjárþurrð hjá fjármálafyrirtækjum. Engu að síður hafi stjórn SPRON veitt Exista jafnhátt lán og raun bar vitni.

Segja stöðu Exista hafa verið sterka

Sakborningar hafa allir haldið því fram fyrir dómi að staða Exista hafi verið sterk en Birgir sagði það vera álitaefni í málinu sem sé þó grundvallaratriði. Vísaði hann meðal annars í mikið tap Exista á árinu 2008 og lækkun hlutabréfa félagsins.

Þá sagði hann það jafnframt vafa undirorpið hvort að eiginfjárstaða Exista hafi verið sterk þegar lánið var veitt þar sem árshlutauppgjör fyrir fyrri hluta ársins 2008 hafi ekki endurspeglað markaðsvirði eigna félagsins.

Eins og áður segir fer ákæruvaldið fram á að allir ákærðu verði dæmdir í fangelsi þar sem brot þeirra eru stórfelld. Ekki voru nefndar neinar tímalengdir í því sambandi í málflutningi í morgun en þó kom fram að ákæruvaldið telji styrk og vilja Guðmundar Haukssonar, fyrrverandi forstjóra, til brots stekari en almennra stjórnarmanna. Hámarksrefsing fyrir umboðssvik er sex ára fangelsi.

Að lokum sagði aðstoðarsaksóknari að ákærðu hafi ekki aðeins brotið gegn trausti hluthafa SPRON með lánveitingunni heldur einnig gegn trausti íslensk samfélags.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×