Erlent

Um 70 þúsund flúið til Tyrklands í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/AFP
Talið er að rúmlega 66 þúsund flóttamenn – sem flestir eru  sýrlenskir Kúrdar – hafi flúið yfir landamærin til Tyrklands í dag til að forðast árásir Íslamska ríkisins í norðurhluta Sýrlands.

Tyrkland opnaði landamæri sín í gær , föstudag, fyrir Sýrlendinga sem flúðu frá kúrdíska bænum Kobane sem talið var að samtökin myndu gera áhlaup á.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lýsti því yfir að aukin áhersla yrði lögð á að aðstoða flóttamenn svæðisins en talið er að hundruð þúsunda gætu fylgt fordæmi þeirra liðlega 70 þúsund sem nú þegar hafa leitað skjóls í Tyrklandi.

Íslamska ríkið ræður nú stórum landsvæðum í Sýrland og Írak, ásamt því að fara með tögl og haldir í tugum bæja í grennd við Kobane – sem einnig er þekkt sem  Ayn al-Arab.

Sýrlenskir Kúrdar flykkjast nú yfir landamærin til Tyrklands.Vísir/AFP
Tyrkland, sem deilir landamærum með Írak og Sýrlandi, hefur tekið á móti rúmlega 847 þúsund flóttamönnum frá löndunum tveimur frá því að borgarstyrjöldin gegn stjórn Bashar al Asad hófst árið 2011.

En atburðir dagsins eru nánast fordæmalausir – Aldrei hafa jafn margir leitað á náðir tyrkneskra stjórnvalda eins og síðastliðnar 24 stundir.

Þá fóru 300 kúrdískar hermenn á móti straumnum og héldu frá Tyrklandi inn í Sýrland til að taka átt í átökunum sem þar geisa við vígamenn Íslamska ríkisins.

Tyrkir og Kúrdar hafa marga hildina háð í gegnum tíðina og lengi hefur blásið köldu milli þjóðanna tveggja. Ákvörðun Tyrkja um að hleypa þúsundum Kúrda inn fyrir landamæri sín er talið til marks um hversu alvarleg ógn stafar af skæruliðum Íslamska ríkisins. 


Tengdar fréttir

Boðað til mótmæla gegn IS í Danmörku

Boðað hefur verið til mótmæla gegn Íslamska ríkinu í Kaupmannahöfn og Árósum í dag og er búist við að hundruð múslimar taki þátt í þeim. Vel á annað þúsund hafa boðað komu sína á mótmælin í Kaupmannahöfn í gegnum Facebook.

„Við elskum að drekka blóð“

Fullyrðingar vígamanns um að liðsmenn Íslamska ríkisins neyti blóðs fórnarlamba sinna hafa vakið mikinn óhug.

Stjórnarher Íraks nær Haditha stíflunni á sitt vald

Írakski stjórnarherinn segist hafa náð að flæma meðlimi Hins íslamska ríkis frá Haditha stíflunni og stórum svæðum þar í kring. Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á vígamenna á þessu svæði sem virðist hafa hjálpað stjórnarhernum í baráttunni.

Obama safnar liði gegn vígasveitunum

Bandaríkjaforseti hyggst útskýra hernaðaráform sín gegn Íslamska ríkinu, sem hefur vaðið uppi í Sýrlandi og Írak. Arababandalagið hefur samþykkt hernaðaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu, en lýsir þó ekki stuðningi við áform Bandaríkjanna.

Gerðu loftárásir á vígamenn í Írak

Bandaríkjamenn hafa síðustu tvo daga gert harðar loftárásir á bækistöðvar Hins íslamska ríkis í Írak nálægt Sinjar fjalli suðvestur af höfuðborginni Bagdad. Þetta eru fyrstu árásirnar sem gerðar eru eftir að Obama forseti lýsti því yfir að gefa þyrfti í í baráttunni við vígamennina sem nú ráða stórum svæðum í Írak og í Sýrlandi.

Þriðji Vesturlandabúinn tekinn af lífi

"Þeir eru engir múslimar, þeir eru skrímsli,“ sagði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, um liðsmenn Íslamska ríkisins sem í gær birtu myndband sem sagt var sýna afhöfðun bresks hjálparstarfsmanns, David Haines að nafni.

Funda í París um ástandið í Írak og Sýrlandi

Johnn Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta kollega sína frá fjölda ríkja á fundi í París sem ætlað er að afla baráttunni við Hið íslamska ríki í Írak og í Sýrlandi fylgis.

Frakkar gera loftárásir í Írak

Stjórnvöld í Frakklandi ætla að verða við beiðni Íraka um aðstoð í baráttunni við Íslamska ríkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×