Innlent

Tuttugu og sex flugferðum aflýst

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Guðjón Arngrímsson.
Guðjón Arngrímsson. vísir/anton
Tuttugu og sex flugferðum Icelandair hefur verið aflýst vegna yfirvofandi verkfalls Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) á morgun. Verkfallið stendur yfir í tólf klukkustundir, frá klukkan sex að morgni til klukkan sex að kvöldi.

„Þó svo viðræður standi yfir hjá sáttasemjara þá komust við ekki hjá því að grípa til þessara ráðstafana nú til að koma í veg fyrir það öngþveiti sem skapast mun á morgun verði ekki af samningum. Við biðjum viðskiptavini félagsins velvirðingar á þeirri miklu röskun sem verkfallið veldur og gerum allt sem í okkar valdi stendur þeim til aðstoðar," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að ákvörðun um að fella niður flugin með þessum fyrirvara sé tekin til þess að eyða óvissu og gefa farþegum tækifæri á því að gera nauðsynlegar ráðstafanir.

Í heild eru um 4500 farþegar, mest erlendir ferðamenn, bókaðir í þær 26 flugferðir sem um er að ræða. Upplýsingum hefur verið komið til þeirra um stöðu mála, meðal annars með smáskilaboðum og tölvupósti. Mikið álag er á þjónustuveri félagsins og fólki því bent á vefsíðu þeirra, icelandair.is.

„Verkfall flugmanna veldur Icelandair miklum vonbrigðum, enda standa þeim til boða sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal meirihluti starfsmanna Icelandair Group,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Þá segir að fyrirtækið muni eftir fremsta megni  reyna að leysa úr þeim vanda sem niðurfelling flugsins skapar viðskiptavinum. Það verði meðal annars gert með því að flytja farþega yfir á flug annarra flugfélaga.

Þeir sem hætta við ferð sína munu fá endurgreitt.

Búast má við seinkunum í flugi Icelandair á laugardagsmorgun og eru farþegar hvattir til að fylgjast með brottfarar- og komutímum flugvéla.


Tengdar fréttir

Flugmenn hjá Icelandair á leið í aðgerðir

Formaður samninganefndar flugmanna hjá Icelandair segir félagið vel hafa efni á að greiða hærri laun. Yfirstjórn félagsins hafi fengið ríflegar hækkanir og hluthafar greiddan út góðan arð.

„Allir vita að flugmenn eru vel launaðir“

Upplýsingafulltrúi Icelandair er hóflega bjartsýnn á að samningar takist áður en verkfallsaðgerðir flugmanna skella á eftir viku. Hann segir kröfur flugmanna umtalsverðar.

Verkfall hefur áhrif á 7.000 ferðalanga

Samtök atvinnulífsins segja að flugmenn Icelandair fari fram á 30 prósenta launahækkun. Fyrsta boðaða verkfall flugmanna er 9. maí og setur ferðaplön 7.000 manns, sem ýmist eru að koma eða fara frá landinu, í uppnám þennan eina dag.

Allar líkur á verkfalli á föstudag

Fundi lauk í kjaradeilu flugmanna Icelandair laust fyrir klukkan 17 í dag, án árangurs. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir enga lausn í sjónmáli.

Flugmenn í verkfall

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur boðað ótímabundið yfirvinnubann flugmanna Icelandair ehf. sem mun hefjast hinn 9. maí klukkan sex að morgni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×