Handbolti

Þetta lýsir vonandi upp myrkrið fyrir íslensku þjóðina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska handboltalandsliðið fagnar hér sigri í Laugardalshöllinni.
Íslenska handboltalandsliðið fagnar hér sigri í Laugardalshöllinni. Vísir/AFP
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, var ánægður með fréttir gærkvöldsins þegar Ísland fékk sæti á HM í Katar ásamt Sádí-Arabíu en þetta var niðurstaða fundar Framkvæmdastjórnar IHF. „Við gleðjumst svo sannarlega yfir þessu og teljum þetta vera mikið og stórt skref fyrir hreyfinguna,“ sagði Guðmundur.

Íslenska landsliðið sat óvænt eftir í umspilsleikjum á móti Bosníu en komst inn bakdyramegin eftir að Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmin drógu sig út. „Menn gerðu mistök í Bosníuleiknum og viðurkenndu það. Þeir fá nú annað tækifæri,“ sagði Guðmundur og hann er viss um að allir vilji vera með.

„Þetta er gott fyrir íslensku þjóðina því núna hefur hún eitthvað að gera í janúar. Þetta lýsir vonandi upp myrkrið,“ sagði Guðmundur í léttum tón og bætti við: „Það sagði einn vinur minn við mig: Hvað á ég eiginlega að gera í janúar, þú verður að fara að koma okkur þarna inn,“ rifjar Guðmundur ennfremur upp.

Ísland hóf málarekstur gegn IHF eftir að Þýskaland var tekið inn þegar Ástralar duttu út. Ísland átti að vera næsta varaþjóð en IHF breytti reglunum í miðri keppni. „Við vorum ekki búnir að gefast upp í þessu dómsmáli og ég ætlaði að halda því áfram,“ sagði Guðmundur en hafði það eitthvað að segja um niðurstöðuna?

„Ég veit það ekki. Við vorum með beiðni á þessum fundi um að fá að fara með málið beint til Íþróttadómstólsins í Lausanne og sleppa þar með næsta dómstigi hjá IHF. Sú beiðni lá fyrir hjá okkur en hún hefur eflaust ekkert verið tekin fyrir fyrst við vorum komnir inn,“ sagði Guðmundur en sætið á HM skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íslenskan handbolta.

„Þessi heimsmeistarakeppni er nánast einskonar undankeppni fyrir Ólympíuleikana og þarna keppa menn um sæti og efstu sætin gefa keppnisrétt í undankeppni fyrir Ólympíuleikana. Ef við stöndum okkur vel þarna þá líkur okkar á því að komast á Ólympíuleikana í Ríó 2016 miklu meiri en þær voru fyrir,“ sagði Guðmundur að lokum.


Tengdar fréttir

Guðjón Valur: Það skiptir engu máli hvernig við komust á HM

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson er gríðarlega ánægður með fréttirnar um að íslenska handboltalandsliðið verði með á HM í Katar í janúar. Framkvæmdastjórn Alþjóðahandboltasambandsins hleypti Íslandi inn bakdyramegin á mótið í kvöld.

Ísland verður með á HM í Katar | Ísland og Sádí-Arabía fá lausu sætin

Íslenska handboltalandsliðið verður með á HM í handbolta í Katar í janúar eftir allt saman en þessi óvænta ákvörðun var tekin á fundi Framkvæmdastjórnar IHF í Þýskalandi í dag samkvæmt óstaðfestum heimildum íþróttadeildar 365 . Íslenska landsliðið fær sæti í C-riðli með Svíum og Frökkum.

Guðmundur B. Ólafsson: Ég þarf ekki að tala Aron Pálmarsson til

Aron Pálmarsson verður með íslenska landsliðinu á HM í handbolta í Katar þrátt fyrir ummæli í vikunni um að hann nennti ekki að koma inn á HM sem einhver varaþjóð. Formaður HSÍ hefur engar áhyggjur af því að Aron verði ekki klár í verkefnið en Ísland fékk í dag sæti á HM í Katar í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×