Handbolti

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð

Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði.
Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði.
Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem tilkynnt var að sambandið hefði ákveðið að kæra ákvörðun Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, um að úthluta Þýskalandi lausu sæti á HM til dómstóls sambandsins. Aðeins fjórir mánuðir eru til stefnu en þetta er líklegast fyrsta skrefið enda mun HSÍ líklegast þurfa að fara með málið fyrir Alþjóða íþróttadómstólinn í Lausanne í Sviss sem tók fyrir málefni Luis Suárez í sumar.

IHF afturkallaði þátttökurétt Ástralíu í upphafi sumarsins og úthlutaði Þýskalandi sæti þeirra þrátt fyrir að evrópska handknattleikssambandið, EHF, hefði þegar tilkynnt HSÍ að Ísland væri fyrsta varaþjóð frá Evrópu.

Málið hefur tekið langan tíma og staðfesti Guðmundur B. Ólafsson, framkvæmdastjóri HSÍ, við Fréttablaðið að þetta væri lokaúrræði HSÍ.

„Þetta er í raun eini valkosturinn í stöðunni hjá okkur. Við höfum ákveðinn tímaramma til að vinna eftir og við lögðum fram tvær tillögur, fyrst að fjölga liðum. Þeir þurftu að ræða þetta að bæta við liðum en sögðu nei á endanum. Þá könnuðum við að fara með málið fyrir Alþjóða íþróttadómstólinn en þeir þurfa að samþykkja það og þeir sögðust ekki geta tekið þá ákvörðun fyrr en í nóvember þegar búið væri að ræða þetta í ráðinu,“ sagði Guðmundur en IHF hefur tekið langan tíma í allar ákvarðanir og ákvað HSÍ að höfða mál fyrir dómstóli IHF til þess að reyna að flýta fyrir málsmeðferð.

„Við reynum ekki að hugsa svo langt að málið endi fyrir Alþjóða íþróttadómstólnum en við ætlum ekki að sætta okkur við þetta. Þeir setja nýjar reglur og tilkynna þetta á sama tíma, þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð og við munum ekki sitja hjá,“ sagði Guðmundur.

Snýst um huglægt mat

Samkvæmt reglunum er litið til áhrifa fjölmiðlunar og markaðssetningar.

„Þetta er huglægt mat, ekki hlutlaust mat. Það er verið að segja að þetta þurfi að vera sterkt lið frá stórri þjóð að þeirra mati og ef svo er þá á Ísland aldrei möguleika á að komast aftur inn. Þeir vita það að það munu fleiri Þjóðverjar en Íslendingar mæta til Katar.“

Forráðamenn HSÍ hafa einnig bent IHF á að jafn stórar breytingar á regluverki ættu ekki að taka gildi á miðju keppnistímabili heldur í næstu keppni.

„Okkar sjónarmið er að ef það er hægt að setja svona reglur eigi þær ekki að taka gildi strax. Þær eiga að taka gildi í næstu keppni á eftir. Þetta eru skrýtin vinnubrögð að breyta reglunum svona í miðri keppni, ég veit að Ísland kæmist aldrei upp með þetta, ekki það að við myndum reyna það. Það er í lagi að gera þetta ef þetta er eitthvað sem hefur jákvæð áhrif en ef þetta er eitthvað sem skaðar einhvern þá er ekki hægt að bjóða upp á það.“

Erum að lenda í tímaþröng

Aðeins fjórir mánuðir eru þar til flautað verður til leiks í Katar og eru forráðamenn HSÍ því að falla á tíma í von sinni um að úrskurði IHF verði breytt.

„Tíminn er auðvitað mjög naumur í þessu og við erum að setja þá í erfiða stöðu. Við vitum ekki hvernig þessi dómstóll virkar, við höfum aldrei lent í svona áður og þetta verður fróðlegt,“ sagði Guðmundur.


Tengdar fréttir

Íþróttaljós: Reglugerðin sem enginn vissi af

Alþjóðahandknattleikssambandið breytti reglunum um hvaða þjóð kæmi til vara ef einhver skyldi ekki fá keppnisleyfi, en lét engan vita. Framkvæmdastjóri evrópska sambandsins lætur ritarann svara spurningum fyrir sig.

Hvorki heyrst frá IHF né EHF

Þrátt fyrir að HSÍ hefði krafist svara fyrir miðnætti hafa engin svör borist frá IHF né EHF varðandi kröfu Íslands um að IHF dragi til baka ákvörðun sína um að úthluta Þýskalandi lausu sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar

Einar: Höfum ekkert heyrt frá IHF

HSÍ hefur hvorki heyrt frá Alþjóða handknattleikssambandinu (IHF) né Evrópska handknattleikssambandinu (EHF) en þetta staðfesti Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ við Vísi rétt í þessu.

Laug EHF að handboltaforystu Íslands?

Framkvæmdastjórn Alþjóðahandknattleikssambandsins leggur til breytingar í þröngum fimm manna hring sem nánast undantekningalaust eru samþykktar. Aum svör Evrópska handknattleikssambandsins til HSÍ.

Svona var reglunum breytt hjá IHF

Varaforseti Handknattleikssambands Evrópu sat fundinn mikilvæga þar sem Þýskalandi var hleypt inn á HM í handbolta.

HSÍ kærir til dómstóls IHF

Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér í dag tilkynningu þar sem fram kom að HSÍ hefur höfðað mál fyrir dómstól Alþjóða handknattleikssambandsins til ógildingar á ákvörðun IHF um að úthluta Þýskalandi sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar.

Ísland á að fara dómstólaleiðina

Ritstjóri þýska vikuritsins Handball Woche telur að handboltaforystan á Íslandi eigi að fara með ákvörðun IHF að hleypa Þýskalandi á HM í Katar fyrir dómstóla.

HSÍ krefst þess að Ísland fái sæti á HM 2015

Handknattleikssamband Íslands hefur krafist þess að Alþjóðahandknattleikssambandið dragi til baka ákvörðun sína að úthluta Þýskalandi lausu sæti á HM í Katar 2015 og úthluti íslenska liðinu sætið líkt og evrópska handknattleikssambandið hafði lofað.

HSÍ ætlar ekki að gefa eftir

Von er á opinberri yfirlýsingu frá Handknattleikssambandi Íslands á morgun vegna ákvörðunar IHF að úthluta Þýskalandi sæti á Heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Katar í upphafi næsta árs. IHF ákvað að draga Ástralíu úr leik og úthluta Þýskalandi sætinu þrátt fyrir að EHF hefði tilkynnt HSÍ að Ísland væri fyrsta varaþjóð frá Evrópu inn á mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×