Viðskipti innlent

Tekjur Íslendinga: Sigurður G. og Óttar þéna vel

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mynd/Vísir
*Uppfært* Launatekjur Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns eru rangar í Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Hann er með 3 milljónir króna á mánuði en ekki 28,8 milljónir, eins og fram kemur í blaðinu. Um er að ræða villu í innslætti sem hefur komist í gegnum mjög strangt innsláttarkerfi Frjálsrar verslunar, sem er með innbyggt villumeldingarkerfi.

Frjáls hefur beðið Sigurður G. Guðjónsson afsökunar á þessum mistökum.

Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi lögfræðistofunnar Draupnis, var tekjuhæsti lögmaður á Íslandi á síðasta ári. Mánaðartekjur hans námu 28.8 milljónum á mánuði á síðasta ári. Óttar Pálsson, lögmaður lögfræðistofunni Logos og stjórnarmaður í ALMC, sem áður hét Straumur, er annar á listanum með 26.2 milljónir. 

Frjáls verslun gefur í dag út sitt árlega tekjublað og er blaðið í sölu í 13 daga. Þar eru birtar tekjur um þrjú þúsund einstaklinga víðs vegar af landinu. Þekkts fólks í þjóðlífinu, menn í atvinnulífi, listum og stjórnmálum.

Óttar er jafnframt í sjötta sæti á lista yfir hæstu greiðendur opinbera gjalda fyrir síðasta ár, greiddi hann 143 milljónir í opinber gjöld. Ástæðan er milljarðabónusgreiðslur til stjórnenda fyrirtækisins. Bónusarnir áttu að hvetja stjórnendurnar til að hámarka viðri eigna félagsins.

Birna Hlín Káradót­ir, yfirlög­fræðingur Fossa markaða, er þriðja á list­an­um með 9,9 milljónir í tekjur á mánuði. Þröstur Ríkharðsson, hæstaréttarlögmaður hjá Meritas er í fjórða sæti með 4,4 milljónir á mánuði.

Markús Sigurbjörnsson, forseti hæstaréttar, er með um 2,1 milljón í tekjur á mánuði. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður er í 20. sæti með 2 milljónir á mánuði í tekjur og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður er með rétt rúmlega eina milljón á mánuði í tekjur.

Listi Frjálsrar verslunar er byggður á útsvarsskyldum tekjum á árinu 2015 og þurfa þær því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Í einhverjum tilvikum kann skattstjóri að hafa áætlað tekjur.


Tengdar fréttir

Tuttugu greiða samtals 2,5 milljarða í skatta

Árni Harðarson, skattakóngur ársins, á að greiða 265 milljónir í skatt fyrir síðasta ár. Listi Ríkisskattstjóra yfir tuttugu hæstu gjaldendur breytist töluvert milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×