Innlent

Fréttamynd

Afhending á rafmagni tefst

Borun vegna gangagerðar við Kárahnjúkavirkjun hefur miðað óvenju hægt undanfarnar vikur. Sprunga varð á leið eins af borunum þremur og þarf að steypa í hana áður en unnt er að bora lengra.

Innlent
Fréttamynd

Molar

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra sækist nú eftir varaformannsembætti Framsóknarflokksins öðru sinni. Á útmánuðum 2001 gaf hún kost á sér í embættið en þá var flokksþing haldið á Hótel Sögu. Tveir aðrir voru í framboði, Guðni Ágústsson og Ólafur Örn Haraldsson.

Innlent
Fréttamynd

Framboð Jónínu kom Guðna á óvart

Lagt hefur verið að Guðna Ágústssyni að bjóða sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum. Hann hefur ekki tekið ákvörðun en segir þrjá kosti í stöðunni. Yfirlýsing Jónínu Bjartmarz um varaformannsframboð kom Guðna á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Kalt vatn komið á ný

Kalt vatn var aftur komið á Seltjarnarnesi og í vestur-og miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í kvöld en kaldavatnslaust hafði verið á þessum stöðum frá klukkan sjö. Grafin hafði verið í sundur kaldavatnsstofnæð á horni Ingólfsstrætis og Sæbrautar sem orsakaði kaldavatnsleysið.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert kalt vatn í miðborginni

Kaldavatnslaust er nú á Seltjarnarnesi og í vestur- og miðbæ Reykjavíkur. Ekki er vitað að svo stöddu hvað veldur en samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunnir er verið að kanna málið. Við segjum nánar frá þessu þegar frekari upplýsingar berast.

Innlent
Fréttamynd

Methagnaður hjá Alcoa

Hagnaður Alcoa Corp. nam 744 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur 57 milljörðum íslenskra króna á öðrum fjórðungi yfirstandandi árs. Þetta er besta afkoma í sögu fyrirtækisins.

Innlent
Fréttamynd

Notkun kreditkorta 22,2% meiri nú en í fyrra

Þenslan kemur meðal annars fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við tólf mánuðina næstu á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% í janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimila síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður.

Innlent
Fréttamynd

Álagið að sliga hjúkrunarfræðinga

Hópur reyndra hjúkrunarfræðinga við Landspítalann er að því kominn að hætta vegna viðvarandi álags, segir formaður félags hjúkrunarfræðinga. Formaður stjórnarnefndar spítalans segir molbúahátt ráða för þegar stjórnvöld ákveði fjárframlög til Landspítalans.

Innlent
Fréttamynd

Níu lóðir standa eftir

Níu lóðir í landi Úlfarsárdals standa eftir en þær voru í hópi 104 lóða sem boðnar voru út í febrúar. Lóðirnar verða settar í hóp lóða í sama hverfi sem er óráðstafað. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti þeim verður útdeilt.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur í fangelsi fyrir að breyta lyfseðli

Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag rúmlega fimmtugan karlmann fyrir skjalafals. Í mars á þessu ári framvísaði hann lyfseðli á lyfið Parkódín Forte, sem hann hafði fengið framvísað hjá tannlækni, en afmáði kross aftan við texta sem tilgreindi að lyfseðlinum mætti aðeins framvísa einu sinni. Í stað þess lét hann líta þannig út fyrir að lyfseðilinn mætti afgreiða fjórum sinnum á minnst sjö daga fresti. Maðurinn játaði brot sitt og var það virt til refsilækkunar. Hann var því dæmdur til fangelsi í þrjátíu daga en einnig var litið til þess að hann hefur ekki gerst sekur um refsiverðan verknað áður og því fellur refsingin niður haldi maðurinn skilorð í tvö ár frá því dómur var kveðin upp.

Innlent
Fréttamynd

Auðvelt að sitja í Seðlabankanum og gagnrýna

Það er auðveldara að sitja í Seðlabankanum heldur en að bera ábyrgð í ríkisstjórn þegar kemur að stjórn efnahagsmála, segir forsætisráðherra. Hann er sannfærður um að verðbólgan sé á niðurleið. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri sagði fyrir aðeins fimm dögum að aðgerðir Seðlabankans væru of varfærnar ef eitthvað væri.

Innlent
Fréttamynd

Góðæri hjá útgerðarfélögum

Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst. Ekki er útlit fyrir að verð á aflanum lækki á næstunni.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 160 manns látnir og tæplega 500 særðir í Mumbai

Talið er að yfir 160 manns hafi látist og tæplega 500 særst í sprengingum í lestakerfi Mumbai á Indlandi fyrr í dag. Komið er í ljós að sprengingarnar voru alls átta en ekki sjö eins og fyrr var talið. Sprengjusérfræðingum tókst að aftengja níundu sprengjuna áður en hún sprakk. Enginn hefur lýst ábyrgð á tilræðinu en öruggt er talið að um hryðjuverk sé að ræða.

Erlent
Fréttamynd

Windows 98 út um gluggann

Tölvurisinn Microsoft hætti í dag stuðningi við sín stýrikerfi frá árinu "98. Þó mikið vatn hafi runnið til sjávar í heimi tækninnar á þessum árum er enn mikill fjöldi fólks sem nýtir sér þennan búnað.

Innlent
Fréttamynd

Aukning í debet- og kreditkortaveltu milli ára

Þenslan kemur m.a. fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við næstu tólf mánuði á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% á tímabilinu janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimilanna síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður.

Innlent
Fréttamynd

Grímur átti lægra boð í borholur á Norð-Austurlandi

Tilboð í borholur á Norð-Austurlandi og uppsetningu blástursbúnaðar voru opnuð í Landsvirkjun í gær. Verkið var boðið út í júní síðastliðnum, en um er að ræða tilraunaboranir fyrir nýtt raforkuver til álframleiðslu á Húsavík. Tvö tilboð bárust, frá Vélsmiðjunni Grími ehf. og frá Stáli og suðu ehf. Tilboð Vélsmiðjunnar Gríms var lægra, rúmlega 8,8 milljónir. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var upp á 8,5 milljónir.

Innlent
Fréttamynd

Skáldaganga um gamla kirkjugarðinn

Borgarbókasafn Reykjavíkur býður til kvöldgöngu um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu á fimmtudaginn. Skáldin og bókaverðirnir Einar Ólafsson og Jónína Óskarsdóttir munu leiða gönguna, sem er hluti af göngudagskrá menningarstofnana borgarinnar, Kvöldgöngur úr Kvosinni, sem nú er boðið upp á annað árið í röð.

Innlent
Fréttamynd

Samkeppni um merki fyrir eyfirsk matvæli

Félag um verkefni til að auka hróður eyfirsks matvælaiðnaðar hefur efnt til samkeppni um merki fyrir verkefnið. Merkið mun auðkenna eyfirskan matvælaiðnað og veitingahús og vera gæðastimpill á vöru og þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgun ferðamanna mikil

Fram kemur í nýlegri skýrslu um erlenda ferðamenn á Íslandi að fjölgun erlendra ferðamanna hefur verið mun hraðari en til dæmis fjölgun landsmanna og vöxtur bílaumferðar síðasta áratuginn.

Innlent
Fréttamynd

Lifrarbólgutilfellum í hundum fjölgar

Á síðustu árum hefur tilfellum lifrarbólgu í hundum farið fjölgandi. Hundar landsins hafa ekki verið bólusettir gegn lifrarbólgu síðustu þrjú ár, vegna þess að þá var hætt að framleiða bóluefni sem notað var gegn lifrabólgu í hundum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Um hundrað manns látnir eftir sprengingar í Mumbai

Sjö sprengjur sprungu í farþegalestum í borginni Mumbai, sem áður kallaðist Bombay, á Indlandi fyrr í dag. Að sögn lögreglu borgarinnar eru að minnsta kosti 100 manns látnir. Björgunarmenn eru á vettvangi og hafa þeir bjargað tugum manna úr lestunum. Forsætisráðherra Indlands hefur kallað til neyðarfundar. Borgin er fjármálamiðstöð landsins og þar hafa áður verið framin sprengjutilræði. Ekki er vitað hverjir bera ábyrgð á tilræðunum en böndin eru talin berast að aðskilnaðarsinnum frá héraðinu Kasmír.

Erlent
Fréttamynd

Umhverfis- og fegrunarátak í Reykjavíkurborg

Laugardaginn 22. júlí hefst umhverfis- og fegrunarátak Reykjavíkurborgar. Átakið ber slagorðið “Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík” og er fyrirhugað að það eigi sér stað í öllum hverfum borgarinnar og hefjist í Breiðholti.

Innlent