Viðskipti innlent

Stærstu sjávarútvegsfyrirtækin högnuðust um 22 milljarða í fyrra

ingvar haraldsson skrifar
Ásbjörn RE í Reykjavíkurhöfn. HB Grandi hyggst leggjast í endurnýjun skipaflotans fyrir 14 milljarða króna með fimm nýjum skipum.
Ásbjörn RE í Reykjavíkurhöfn. HB Grandi hyggst leggjast í endurnýjun skipaflotans fyrir 14 milljarða króna með fimm nýjum skipum. vísir/gva
Sjávarútvegur HB Grandi, Síldarvinnslan og Samherji, þrjú af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, högnuðust samtals um 22 milljarða króna á síðasta ári.

Hagnaður Samherja var mestur, eða rúmir 11 milljarðar króna, en um helmingur starfsemi Samherja er á erlendri grundu. Arðgreiðslur til hluthafa munu nema 1,4 milljörðum króna.

Síldarvinnslan hagnaðist næstmest, eða um 6 milljarða króna, sem er aðeins meira en árið 2013 þegar hagnaður var 5,6 milljarðar. Rekstrartekjur fyrirtækisins námu 21,4 milljörðum króna og rekstrargjöld 14,1 milljarði.

HB Grandi hagnaðist um 5,3 milljarða króna á gengi dagsins í dag, en félagið gerir upp í evrum. Fyrirtækið greiddi 2,7 milljarða í arð vegna síðasta árs. HB Grandi hefur einnig skilað uppgjöri vegna fyrri hluta ársins 2015 en hagnaðurinn ríflega tvöfaldast milli ára. Hagnaðurinn var 3,2 milljarðar á fyrri hluta þessa árs samanborið við 1,4 milljarða á fyrri hluta ársins 2014.

Öll félögin gera erfiðar útflutningshorfur í uppsjávarafurðum að umtalsefni í uppgjöri sínu. Síldarvinnslan frestaði arðgreiðslum vegna innflutningsbanns Rússa en um 40 prósent uppsjávarafurða Síldarvinnslunnar hafa verið flutt til Rússlands. HB Grandi gerir ráð fyrir að tap fyrirtækisins vegna innflutningsbannsins verði 1,5 til 2 milljarðar króna. Samherji segist hafa flutt út afurðir fyrir á fimmta milljarð til Rússlands í fyrra. Þess utan sé ástandið fyrir uppsjávarafurðir í Úkraínu erfitt og útflutningur hafi dregist mikið saman. Þá hafi annað olíuútflutningsríki, Nígería, komið á innflutningsbanni vegna gjaldeyrisskorts.

Fyrirtækin hyggja öll á eða hafa lagt í umtalsverðar fjárfestingar. Samherji hyggst kaupa sex ný fiskiskip sem kosta eiga nærri 25 milljarða. Þá hyggst HB Grandi láta smíða fjögur skip í Tyrklandi til viðbótar við togarann Venus sem kom til landsins í vor. Alls eiga skipin að kosta 14 milljarða króna.

Síldarvinnslan lagði í tíu milljarða fjárfestingu í fyrra. Fyrirtækið keypti aflaheimildir frá Stálskipum í Hafnarfirði og hlutabréf í Gullbergi á Seyðisfirði. Auk þess keypti Síldarvinnslan nýtt uppsjávarveiðiskip frá Noregi og reisti þúsund fermetra hús sem lið í uppbyggingu í uppsjávarvinnslu félagsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×