Skútumáliđ - fréttaskýring

Vísir Innlent 20. apríl 2009 17:53
Myndatökumenn frá Fréttablađinu og Stöđ 2 fengu ađ mynda skútuna úr flugvél Landhelgisgćslunnar seinnipartinn í dag. Mynd/ Anton.
Myndatökumenn frá Fréttablađinu og Stöđ 2 fengu ađ mynda skútuna úr flugvél Landhelgisgćslunnar seinnipartinn í dag. Mynd/ Anton.

Alls hafa sex einstaklingar verið handteknir í umfangsmesta og stærsta fíkniefnsmygli Íslandssögunnar. Lögreglan er þegar búinn að leggja hald á 109 kíló af hvítu dufti, amfetamíni eða Kókaíni, maríjúna, og svo MDMA eða E-töflur eins og efnið er iðullega nefnt.

Fimm Íslendingar voru handteknir í aðgerðunum sem samanstóð af fjölmörgum lögregluembættum og teygði sig til Belgíu, Hollands auk Færeyja. Síðan kom dönsk flugvél til þess að aðstoða Landhelgisgæsluna við eftirför smyglskútunnar sem heitir Sirtakis.Þá hefur einn Hollendingur verið handtekinn vegna málsins en talið er að hann hafi komið hingað til lands áður. Fíkniefnalögreglan hér á landi hefur einnig notið liðsinnis Europol.






Dularfulla skútan Elysse sem lá óhreyfđ á Hornafirđi. Hugsanlega upphafiđ ađ endi smyglaranna.
Dularfulla skútan Elysse sem lá óhreyfđ á Hornafirđi. Hugsanlega upphafiđ ađ endi smyglaranna.

Dularfulla skútan

Eins og gefur að skilja þá er málið gríðarlega umfangsmikið en talið er að málið eigi rætur allt til ársins 2008. Þá barst tilkynning um skútu sem lá óhreyfð í höfninni í Hornafirði. Skútan hét Ely og hafði legið við bryggjuna í sjö mánuði. Einn viðmælandi Vísis sagði að hann hefði vissu fyrir því að tveir Hollendingar hefðu siglt skútunni til Íslands. Þeir hefðu síðan yfirgefið hana og aldrei vitjað hennar aftur.

Það var ekki fyrr en bæjaryfirvöld fóru að velta fyrir sér hver ætti skútuna vegna ógreiddra hafnargjalda sem menn fóru að leggja tvo og tvo saman.

Þegar þarna var komið við sögu þá var var spíttskútumálið í hámæli en þá smygluðu nokkrir menn fjörtíu kílóum af amfetamín til Íslands. Það var í fyrsta skiptið sem slíkt komst upp. Þeir voru allir dæmdir og sitja nú inn á Litla Hrauni.






Skútuspćjarinn Menno De Drivjer hafđi aldrei upplifađ ađra eins leynd í kringum týnda skútu.
Skútuspćjarinn Menno De Drivjer hafđi aldrei upplifađ ađra eins leynd í kringum týnda skútu.

Þegar fjölmiðlar fóru að fjalla um skútuna dularfullu gaf einn maður sig fram og sagðist vera eigandi hennar. Það reyndist vera einn hinna handteknu í skútumálinu stóra, Jónas Árni Lúðvíksson. Hann sýndi fram á pappíra um að hann væri löglegur eigandi dularfullu skútunnar Ely.

Á sama tíma var réttað yfir Jónasi Árna auk annars manns vegna annarrar smygltilraunar þar sem þeir áttu að hafa reynt að koma tæpum fjórum kílóum af kókaíni til landsins með Benz bifreið. Þeir voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur og síðar í Hæstarétti Íslands.

Í ljós kom við frekari eftirgrennslan að skútan Ely var í raun stolin og bar nafnið Elysse. Eigandinn reyndist Hollendingur en hann hafði leigt skútuna út en henni var aldrei skilað.






Frá vettvangi á Hornafirđi í gćr.
Frá vettvangi á Hornafirđi í gćr.

Skútuspæjari kemur til Íslands

Það var svo sumarið 2008 sem skútuspæjarinn Menno Den drijver kemur til Íslands fyrir hönd hollenska tryggingafélagsins Dextton. Því hafði verið falið að hafa upp á skútunni og koma henni síðan í verð.

Samkvæmt heimildum Vísis þá lenti Menno í stökustu vandræðum vegna málsins. Ástæðan var sú að fyrirtæki hans hafði hingað til verið í góðu samstarfi við Europol sem og aðra löggæslustofnanir. Svo reyndist ekki í þessu tilfelli.

Í viðtali við DV síðasta sumar sagði Menno: „Við höfum vitað af henni [skútunni Ely] á Íslandi í marga mánuði. Þegar við létum hollensku lögregluna fá allar upplýsingar kom hins vegar upp eitthvert leyndardómsfullt dæmi frá Europol. Þeir sýndu skútunni mikinn áhuga."

Úr varð að Menno koma sjálfur til Íslands vegna málsins.

Að lokum kom í ljós að pappírarnir sem Jónas Árni hafði undir höndum og áttu að sanna eignarhald hans, voru falsaðir. Þá setti Menno skútuna á sölu hér á landi og var hún keypt af íslenskum aðilum. Söluvirði hennar var um 20 milljónir króna.

Jónas Árni var ekki grunaður um að hafa stolið henni, heldur eingöngu að hafa keypt óafvitandi þýfi.

Tveir Hollendingar handteknir

Þegar Vísir ræddi við einn af núverandi eigenda skútunna Elysse sagði hann að Hollendingarnir sem stálu skútunni höfðu verið handteknir í Belgíu haustið 2008. Ástæðan fyrir því að þeir voru handteknir var sú að þeir voru að reyna stela annarri skútu.

Þegar hann var spurður um skútuna sem hann og fleiri keyptu sagðist hann standa í þeirri trú að hún hefði verið notuð í samskonar smygl og nú hefur komist upp um. Hann sagði að sjálfur hefði hann rætt við hollenska tryggingaspæjarann sem sagði honum að hann hefði aldrie upplifað aðra eins leynd og með skútuna Elysse. Þá hafði hann aldrei mætt jafn mörgum hindrunum hjá lögregluembættum og hérlendu lögreglunni sem og Europol og hollensku lögreglunni.

Það var ljóst að mikill leyndarhjúpur var í kringum skútuna Elysse.

Þegar haft var samaband við Friðrik Smára Björgvinsson, yfirlögregluþjón á höfuðborgarsvæðinu, og hann spurður hvort tengsl væru þarna á milli þá vildi hann ekki tjá sig nánar um málið en fram hefur komið í fréttatilkynningum.

Ekki þykir ólíklegt, miðað við viðbrögðin sem tryggingaspæjarinn Menno fékk, að rannsókn hafi verið hafin veturinn 2007-2008.






Glćsilegur ađbúnađur í smyglsskútu.
Glćsilegur ađbúnađur í smyglsskútu.

Smyglskúta með tveimur sturtum

Athygli vekur að ári síðar er samskonar skúta notuð á sama stað við smygl á svo miklum fíkniefnum. Ennfremur er það athyglisvert að sami maður hafi gert tilkall til dularfullu skútunnar Elysse og hefur nú verið handtekinn í tengslum við smyglið nú.

Skútan sem um ræðir heitir Sirtakis og var tekin á leigu í Belgíu. Það er fyrirtækið Channel Sailing sem á skútuna og leigir hana út. Samkvæmt verðskrá á heimasíðu fyrirtækisins þá er verð fyrir vikuleigu á skútunni frá þrjúhundruð upp í fimm hundruð þúsund krónur. Skútan er gríðarlega vel útbúinn. Hún er 43 fet á lengd, með tvær sturtu og átta til tíu manns komast fyrir í henni.

Skútan var tekinn á leigu í Zeebruges í Belgíu.

Samkvæmt lögreglu er ekki ljóst hvort skútan hafi einfaldlega verið á leigu eða hvort henni hafi verið stolið.

Sunnlendingar í smygli

Þeir þrír sem hafa verið nafngreindir og hnepptir í gæsluvarðhald í málinu, eru allir frá Suðurlandinu. Jónas Árni Lúðvíksson er frá Selfossi og það er Pétur Kúld Pétursson einnig Aftur á móti er Halldór Hlíðar Bergmundsson frá Hveragerði.

Ekki er meira vitað um tengsl þeirra innbyrðis. Þó er vitað að Pétur og Jónas voru kunningjar.

Þá er vitað að Pétur Kúld fór í áfengis- og vímuefnameðferð rétt fyrir jól. Hann er menntaður smiður og starfaði sem verktaki. Samkvæmt heimildum Vísis þá hafði kreppan farið illa með rekstur hans og við honum blasti hugsanlegt gjaldþrot.

Halldór Hlíðar er búsettur í Reykjavík og starfaði við vinnuvélar áður en hann missti vinnuna í kreppunni. Hann hefur verið án atvinnu síðan þá. Hann er 31 árs gamall og er frá Hveragerði.

Jónas Árni virðist hafa haft mesta reynslu af fíkniefnasmygli en hann var ákærður fyrir stórfellt kókaín smygl árið 2008 eftir að efnin fundust í BMW bifreið á hafnarsvæðinu við Vatnagarðar. Auk hans var Rúnar Þór Róbertsson ákærður og að lokum sýknaður.

Þrír aðrir menn voru handteknir, þar á meðal Hollendingur. Þeir eru allir á svipuðum aldri og þeir sem hafa verið nafngreindir. Þeir voru handsamaðir í skútunni þegar hún var kominn langleiðina til Færeyja. Sérsveit Ríkislögreglustjóra fór um borð og handsamaði þá. Í morgun vildi Stefán Eiríksson lögreglustjóri ekki staðfesta að þeir hefðu verið vopnaðir.

Að lokum

Þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald en þeir sem voru á skútunni eru enn á leiðinni til lands. Búast má við að þeir verði einnig úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Samkvæmt heimildum Vísis þá hefur lögreglan ekki handtekinn þann sem fjármagnaði innflutningin. Talið er að verðmætin sem töpuðust hafi hlaupið á tugum milljóna. Götuvirði fíkniefnanna hlaupa á hundruðum milljóna króna.

Lögreglan verst enn frétta af málinu og er rannsókn í fullum gangi. Húsleit hefur verið framkvæmd á heimilum hinna handteknu. Þá virðist fíkniefnalögreglan enn vera að bíða upplýsinga frá öðrum erlendum löggæslustofnunum.

Þess má geta að götuvirði fíkniefnanna er meira en hægt var að fá fyrir 200 kílóin af hassinu sem Þorsteinn Kragh var dæmdur fyrir að smygla til landsins í slagtogi við Hollending nú fyrir stuttu. Því er málið sennilega stærsta fíkniefnamál sem upp hefur komið hér á landi. Sé málið sett í samhengi við önnur fíkniefnamál við nágrannalöndin, þá er það enn tröllaukið.





Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 26. maí. 2012 06:45

Verđbólga lćkkađi merkjanlega

Tólf mánađa verđbólga lćkkađi úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímćlingu Hagstofunnar. Va...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 06:00

Risaratsjár Monge forđa geimárekstrum

Franska skipiđ Monge liggur viđ Reykjavíkurhöfn. Ţađ er einstaklega vel tćkjum búiđ og fyl...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 04:00

Viđrćđur um fjármögnun hefjast í nćstu viku

Formlegar viđrćđur um fjármögnun Hverahlíđarvirkjunar hefjast í nćstu viku. Ađ sögn Ingvar...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:54

Framhaldiđ af Hungurleikunum komiđ út á íslensku

Slökkviliđsbíll var til taks ţegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:45

Matarolía af ökrum íslenskra bćnda

Íslensk matarolía af akrinum er ţađ nýjasta sem íslenskir bćndur bjóđa landsmönnum en ţett...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:02

Mikill spenningur í Bakú - Gréta og Jónsi tilbúin

„Ég held ađ ţetta fari ţannig ađ Svíţjóđ vinni," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 20:02

Jónsa og Grétu Salóme spáđ 2. sćti

OGAE, eđa Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alţjóđlegum samtök...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:13

Hvađ gerum viđ ef viđ vinnum Eurovision?

"Ţađ er ekki til nein viđbragđsáćtlun í ţessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:45

Catalina markađi djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langţráđan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:20

Raunhćft ađ ljúka viđrćđunum fyrir kosningar

Stefan Füle, stćkkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja ađ öll spilin í ađildarviđrćđ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:30

Lögreglumenn fóru ađ selja trúnađarupplýsingar haustiđ 2011

Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kćrt til ríkissaksóknara vegna brot...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:50

Harđur árekstur í Hafnarfirđi

Harđur tveggja bíla árekstur varđ á gatnamótum Hafnarfjarđarvegar og Álftanesvegar fyrir s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:34

Ţriđjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduđ í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvćmt tilkynningu lögreglu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:32

Kannabis í kjallara

Tvö hundruđ grömm af marijúana í sölupakkningum fundust viđ húsleit í kjallaraíbúđ í miđbo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Ţóra jöfn samkvćmt nýrri könnun MMR

Nákvćmlega sami fjöldi myndi kjósa Ţóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir ađgerđirnar bitna mest á höfuđborgarsvćđinu

"Ţessar ađgerđir bitna mest á höfuđborgarsvćđinu, meirihluti ţeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfđ inni í bílskúr geta nú öđlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiđakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunađir innbrotsţjófar úrskurđađir í gćsluvarđhald

Tveir karlar á ţrítugsaldri hafa veriđ úrskurđađir í gćsluvarđhald til 1. júní ađ kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til ađ hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsćtisráđherra, segist hlakka til ađ hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garđar Helgason, formađur bćjarráđs í Fjarđabyggđ, hvetur íbúa á Fáskrúđsfirđi og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Ţađ er eitthvađ súrt viđ ţetta“

"Ţetta slćr menn,“ segir Björn Valur Gíslason, ţingflokksformađur Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu fćrandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu međ gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluţjónn kćrir falsađa undirskrift á lista Ástţórs

Daníel Guđjónsson, yfirlögregluţjónn á Akureyri, hefur kćrt fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eđlilegt ađ lögreglan rannsaki frambođslista

Ástţór Magnússon forsetaframbjóđandi hefur skilađ hátt í 200 undirskriftum til viđbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóđ á bak viđ stćrsta fíkniefnainnflutning síđasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóđu ađ innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta ţúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrđi

Rúnar Bjarki Ríkharđsson, sem fékk einn ţyngsta dóm sem falliđ hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsćtisráđherra, hefur gengiđ til liđs viđ OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Međ loftbyssu og skotfćri í Leifsstöđ

Karlmađur var međ loftbyssu og skotfćri í fórum sínum í Flugstöđ Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar ađ kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á nćstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákćrđur fyrir hćttulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmađur hefur veriđ ákćrđur fyrir sérstaklega hćttulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóđa upp á nettengingu í háloftunum

Ţeir sem fljúga međ flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta veriđ netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farţega

Lögreglan á Akranesi stöđvađi í gćrkvöldi bifreiđ sem var á ferđ viđ bćinn. Ţrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tćplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sćvar Sverrisson, höfuđpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dćmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveđinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verđur kveđinn upp í einu stćrsta fíkniefnamáli síđasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuđningur viđ áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embćtti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvćmdastjórn Evrópu tilkynntu í gćr um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hćttulegrar árásar

Hćstiréttur stađfesti í gćr dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herđi Ţráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leiđ til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viđbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annţórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verđur rýmdur fyrir tvo fanga sem grunađir eru um manndráp áđ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosiđ um sameiningu í haust

Íbúar Garđabćjar og Álftaness munu greiđa atkvćđi um ţađ í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um ađ aukinn trjágróđur og byggđ innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferđin kom til af nauđsyn

Lćkkun á veiđigjaldi frá ţví sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnađi 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Bođar skođun á innra skipulagi embćttisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verđa endurskođađar í kjölfar ţess ađ embćttiđ kćr...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glćpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alţingis beinir ţeim tilmćlum til innanríkisráđherra ađ und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagrćđingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fćkkar um 50 um mánađamótin vegna hagrćđingarađgerđa. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kćrt til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á ţví a...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:00

Segir jafnréttismál í ólestri

Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir, ţingmađur Sjálfstćđisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Skútumáliđ - fréttaskýring