ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL NÝJAST 20:16

Karen sterk í glæsilegum útisigri

SPORT

Segir leiðtoga Palestínu hafa sannfært nasista um helförina

 
Erlent
10:48 21. OKTÓBER 2015
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael. VÍSIR/EPA

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur valdið miklum usla í morgun. Hann sagði að þáverandi leiðtogi Palestínumanna, Haj Amin al-Husseini, hefði sannfært Adolf Hitler um að reyna að útrýma gyðingum í Evrópu.

„Hitler vildi ekki eyða gyðingum á þeim tíma, hann vildi reka þá af yfirráðasvæði sínu,“ sagði Netanyahu. Hann sagði Hitler hafa spurt al-Husseini út í hvað hann ætti að gera og að svarið hefði verið: „Brenndu þá“.

Sérfræðingar segja Netanyahu hafa rangt fyrir sér. Aðrir gagnrýnendur segja ummælunum ætlað að æsa fólk upp gegn Palestínumönnum, en spenna á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna hefur verið gífurleg undanfarin misseri. Fjöldi fólks hefur látið lífið í árásum og mátmælum síðastliðin mánuð.

Uppfært
Al-Husseini flúði Jerúsalem árið 1937 þegar til stóð að handtaka hann. Á næstu árum fór hann til Þýskalands þar sem hann ræddi við Hitler árið 1941, en þá voru Nasistar þegar byrjaðir á „Lokalausninni“ sem fól í sér þjóðarmorð á gyðingum í Evrópum.

Netanyahu segist þó ekki hafa ætlað að draga úr ábyrgð Hitler á Helförinni með ummælum sínum.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

 

MEST LESIÐ

  • Nýjast á Vísi
  • Mest Lesið
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
Forsíða / Fréttir / Erlent / Segir leiðtoga Palestínu hafa sannfært nasista um helförina
Fara efst