Formúla 1

Rosberg vann í Mónakó þriðja árið í röð

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg fékk 25 stig á silfurfati í dag.
Nico Rosberg fékk 25 stig á silfurfati í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í Mónakó þriðja árið í röð. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes varð þriðji.

Pastor Maldonado hætti keppni á hring sex. Hann hefur einungis lokið einni keppni á tímabilinu af sex.

Hamilton jók jafnt og þétt bilið á milli sín og Rosberg í upphafi. Hamilton fékk viðvörun um að frambremsurnar væru farnar að hitna of mikið. Hann var svo ítrekað minntur á að fara varlega með þær og nota afturbremsurnar meira.

Kimi Raikkonen náði að komast fram úr Daniel Ricciardo með því aðnýta tímann eftir þjónustuhlé þeirra beggja. Raikkonen gat unnið upp bilið eftir að Ricciardo fór inn og fór svo sjálfur inn á næsta hring og kom út á undan Ricciardo.

Fernando Alonso hætti keppni á hring 42. Hann var á góðri leið með að landa fyrstu stigum tímabilsins. Gírkassinn í McLaren bílnum gaf sig ef marka má ummæli liðsins.

Max Verstappen á Toro Rosso sýndi mikil klókindi þegar liðsfélagi hans, Carlos Sainz vék fyrir Vettel, stakk Verstappen sér beint fram úr á á eftir Ferrari bílnum. Verstappen lék svo sama leik þegar Vettel hringaði Valtteri Bottas.

Romain Grosjean var varaður við aðferðum Verstappen og tókst að koma í veg fyrir að verða fórnarlamb sömu aðferða á snilldarlegan hátt.

Max Verstappen gerði mistökin sem voru valdur að öllum hamaganginum undir lok keppninnar.Vísir/getty
Verstappen lenti svo aftan á Grosjean í fyrstu beygj skömmu seinna og lenti harkalega á varnarvegg en slapp með skrekkinn.

Öryggisbíllinn var kallaður út á hring 64 og þjappaði hópnum saman, margir ökumenn nýttu tækifærið til að setja ofur mjúk dekk undir.

Hamilton tók þjónustuhlé, Rosberg og Vettel gerðu það ekki og Rosberg tók þá forystuna og Vettel varð annar. Mercedes gerði stór mistök með því að láta Hamilton taka þjónustuhlé. Bilið á milli Mercedes mannanna var um 21 sekúnda þegar öryggisbíllinn kom út.

Vettel var á undan Hamilton þegar þeir fóru yfir öryggisbíla línuna og mátti því taka annað sæti.

Rosberg og Vettel voru á talsvert eldri mjúkum dekkjum á móti glænýjum ofurmjúkum dekkjum Hamilton. Spennan var gríðarleg eftir að öryggisbíllinn kom inn.

Ricciardo tók fram úr Raikkonen þegar fimm hringir voru eftir. Ricciardo tók svo fram úr liðsfélaga sínum skömmu seinna. Ricciardo var snöggur að ná Hamilton en reyndi allt hvað hann gat til að komast fram úr. Riccardo helypti Kvyat fram úr sér undir lokin.

Ljóst er að margt þarf að ræða eftir þessa ótrúlegu lokahringi. Viðbrögð við keppninni eru væntanleg innan skamms.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu upplýsingum frá keppni helgarinnar.


Tengdar fréttir

Hamilton: Ég á meira inni

Lewis Hamilton sýndi hvað hann getur á seinni æfingu gærdagsins. Hann var 0,7 sekúndum á undan liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg.

Hamilton finnst ótrúlegt að geta náð Senna

Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir það ótrúlega tilfinningu að nálgast þá mögnuðu tölfræði sem Ayrton Senna náði á sínum ferli.

Bílskúrinn: Baráttan í Barselóna

Nico Rosberg vann loksins keppni á tímabilinu. Hann hefur þá minnkað muninn í Lewis Hamilton niður í 20 stig. Liðsfélagarnir hjá Mercedes virðast ætla að berjast af hörku en sanngirni í ár, að minnsta kosti hingað til.

Lewis Hamilton á ráspól í Mónakó

Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fyrsta ráspól í Mónakó. Liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar en átti ekkis var. Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×