Viðskipti innlent

Óvissa um rekstrahæfi Reykjaneshafnar

ingvar haraldsson skrifar
Reykjaneshöfn hefur lagst í miklar fjárfestingar í Helguvík.
Reykjaneshöfn hefur lagst í miklar fjárfestingar í Helguvík. vísir/gva
Óvissa er um rekstrahæfi Reykjaneshafnar samkvæmt nýbirtum ársreikningi hafnarinnar.

Félagið sem er í eigu Reykjanesbæjar tapaði 103 milljónum á síðasta ári. Mikill taprekstur hefur verið á höfninni undanfarin ár en skuldir þess nema tæplega 8 milljörðum króna og eigið fé er neikvætt um 4,5 milljarða.

Árið 2016 þarf Reykjaneshöfn að greiða 2,2 milljarða í afborganir af lánum auk vaxta. Því þarf fyrirtækið nauðsynlega að endurfjármagna lán sín samkvæmt því sem kemur fram í ársreikningi ársins 2014.

Rekstrartekjur námu 600 milljónum en rekstrargjöld 182 milljónum árið 2014. Fjármagnsgjöld námu 488 milljónum króna sem átti stærstan þátt í að skýra tapið.

Reykjaneshöfn hefur lagst í miklar fjárfestingar undanfarin ár til þess að undirbúa komu stóriðju við Helguvík. Dráttur hefur þó orðið á að stóriðja hefjist á svæðinu.

Stjórn Reykjaneshafnar vonast þó til að framkvæmdir við nýtt kísilver Thorsil ehf. muni hefst á árinu. Þá er einnig búist við þriðju greiðslu af fjórum frá United Silicon sem hefur hafið byggingaframkvæmdir í Helguvík. Einnig er gert ráð fyrir ríkisframlagi til framkvæmda við höfn í Helguvík á næstu árum.


Tengdar fréttir

Reykjanesbær tapar tæpum milljarði

Reiknað tap samstæðu Reykjanesbæjar nemur 973 milljónum króna, að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða. Taprekstur af Reykjaneshöfn nemur 650 milljónum króna.

Reykjaneshöfn hefur tapað 2,8 milljörðum á fimm árum

Reykjanesbær situr uppi með þungar byrðar vegna tapreksturs Reykjaneshafnar, sem rekur hafnir bæjarfélagsins. Skuldirnar eru 7,3 milljarðar króna. Tapið í fyrra var 650 milljónir króna. Kostnaðarsöm uppbygging í Helguvík skýrir tapið að mestu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×