Erlent

Obama ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Ísrael

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Benjamin Netanyahu
Benjamin Netanyahu Vísir/AFP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hefði rætt við Benjamin Netanyahu. forsætisráðherra Ísraels, um ástandið á Gaza. Lagði hann áherslu á stuðning Bandaríkjanna við Ísrael um rétt þjóðarinnar til að verjast árásum. Reuters greinir frá.

Fundurinn var haldinn vegna harmleiksins í Úkraínu. Í lok fundarins minntist hann hins vegar á ástandið á Gaza. Obama sagði þó að Bandaríkin hefðu miklar áhyggjur af lífum saklausra borgara á Gaza.

„Við erum vongóð um að Ísrael muni áfram nálgast ástandið á þann veg að lágmarka fall almennra borgara,“ sagði Obama við blaðamenn. Viðbrögð forsetans koma í kjölfar aukins ofbeldis á Gaza. Sagði Obama að sírenur hefðu heyrst á meðan á símtali þeirra stóð.

Samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðherranum eru þetta þær aðstæður sem milljónir Ísraela þurfi að búa við. Obama segir John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sé tilbúinn að heimsækja átakasvæðið.

„Öll vinnum við að því að að endurheimta vopnahléð sem náðist í nóvember 2012.“

Talið er að a.m.k. 274 Palestínumenn hafi látið lífið og yfir 2000 særst í loftárásum Ísraela á Gaza undanfarna ellefu daga. Talið er að 28 manns hafi látið lífið undanfarinn sólarhring skv. frétt Guardian.


Tengdar fréttir

Þrjú börn fórust eftir vopnahléð

Fljótt eftir að fimm klukkustunda vopnahlé Hamas og Ísraelshers var aflétt í dag hófust árásir á ný og 3 börn biðu bana í Gaza borg. Um 227 hafa fallið á Gaza í loftárásum Ísraels, samkvæmt palestínskum yfirvöldum, á síðustu tíu dögum.

Herinn herðir sókn á Gaza

Stjórnvöld í Ísrael hafa greint frá því að herinn muni herða sókn á Gazasvæðinu og hefur átján þúsund manna varalið hefur verið kallað út. Fjöldi hermanna Ísraelshers er því komin í sextíu og fimm þúsund.

Fimm stunda vopnahlé á Gasa

Hamas og Ísraelsher hafa fallist á vopnahlé svo koma megi nauðþurftum til íbúa Gasa-svæðisins.

Palestínumenn eitt stórt skotmark

Ísraelar hófu loftárásir sínar á Gasa-svæðið af fullri hörku í gær. Forseti Palestínumanna, Mahmoud Assan, er nú í Kaíró en hefur lítið rætt stríðið. Stuðningur Palestínumanna við hann hefur minnkað og færst til Hamas.

Innrás Ísraelshers hafin á Gaza

sraelsmenn hafa hafið innrás á Gaza-ströndina og her þeirra fram af landi, sjó og úr lofti. Eitt helsta markmið innrásarinnar er að eyðileggja jarðgöng sem liðsmenn Hamas hafa notað til að komast inn í Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×