Erlent

Mæðginamynd Ivönku sögð taktlaus

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ivanka Trump er dóttir Bandaríkjaforseta og sérlegur ráðgjafi hans.
Ivanka Trump er dóttir Bandaríkjaforseta og sérlegur ráðgjafi hans. Vísir/Getty
Ivanka Trump hefur fengið yfir sig holskeflu netníðs síðastliðinn sólarhring eftir að hafa birt mynd af sér og tveggja ára syni sínum í gærmorgun. Gagnrýnendum hennar þykir myndbirtingin smekklaus vegna frétta sem berast nú af landamæravörðum sem aðskilja börn frá foreldrum sínum við komuna til Bandaríkjanna.

„Þetta er svo ótrúlegt taktleysi, í ljósi þess hve reiður almenningur er vegna þeirra ungu barna sem rifin eru úr höndum foreldra sinna á landamærunum - ómannúðleg löggjöf sem Ivanka Trump styður með aðgerðaleysi sínu.“ Þetta skrifar Brian Klaas, fyrrverandi ráðgjafi Demókrataflokksins og félagi í London School of Economics.

Fjölmargir netverjar taka í sama streng, eins og grínistinn Patton Oswald og þúsundir mæðra sem biðla til Ivönku Trump um að setja sig í spor fjölskyldna á landamærunum.

 

Fjölskyldur sem komu ólöglega til Bandaríkjanna hafa fram til þess mátt fylgjast að þangað til að mál þeirra hefur verið leitt til lykta fyrir dómstólum. Breyting varð á þessu fyrirkomulagi í maí síðastliðinum þegar dómsmálaráðherrann Jeff Sessions tilkynnti um nýja stefnu í málaflokknum. Foreldrar eru nú strax leiddir fyrir dómara á meðan félagsþjónustan tekur við börnunum.

New York Times greindi hins vegar frá því í apríl síðastliðnum að um 700 börn hafi verið aðskilin frá foreldrum sínum frá því í október á liðnu ári - löngu fyrir innleiðingu breytinganna. Þar af höfðu 100 börn ekki náð fjögurra ára aldri.

Þá er talið að félagsþjónustan hafi týnt um 1500 börnum sem komið hafði verið fyrir hjá fósturforeldrum. Þau börn höfðu komið ein til Bandaríkjanna.

Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem innleiddi hin nýju lög og sér til þess að þeim er framfylgt, hefur í tístum sínum kennt Demókrataflokknum um ástand málaflokksins.

„Setja á þrýsting á demókrata svo að afnema megi hin hræðilegu lög sem aðskilur börn frá foreldrum sínum þegar þau koma yfir landamærin,“ skrifar forsetinn. Blaðamenn Guardian geta ekki gert sér í hugarlund hvers vegna Trump segir að demókratar beri ábyrgð á lögunum sem núverandi stjórnvöld kynntu til sögunnar.


Tengdar fréttir

Ivanka trúir ekki ásökunum um kynferðislega áreitni Trump

Ivanka Trump, dóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir að hún trúi því að faðir hennar hafi ekki áreitt konur kynferðislega. Donald Trump hefur verið ásakaður um kynferðislega áreitni af fjölda kvenna.

Ivanka gagnrýnd fyrir að lofsama ræðu Opruh

Ivanka Trump, elsta dóttir og einn helsti ráðgjafi Donalds Trump bandaríkjaforseta, er ein þeirra sem var inbnblásin af ræðu Opruh Winfrey á Golden Globe verðlaununum um liðna helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×