Viðskipti innlent

Kvika tekur við af MP Straumi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri bankans.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri bankans. Vísir/Anton
MP Straumur fær nýtt nafn frá og með næsta mánudegi. Bankinn mun bera hið íslenska nafn Kvika. Nafnið vísar í óbeislaða orku íslenskrar náttúru; jarðkvikuna sem iðar og hrærist, umbreytir og skapar spennu, segir í tilkynningu.

Nafnabreytingin mun taka gildi í kjölfar hluthafafundar á mánudagsmorgun. Í kjölfar fundarins verður vefsíðu bankans og heimabankans breytt.

Samhliða þessari breytingu mun Kvika taka upp nýtt merki.  

Kvika ætlar að veita öðrum íslenskum fjármálastofnunum harða samkeppni á þeim sviðum sem sérhæfing bankans liggur. Kvika er umbreytingabanki sem sérhæfir sig í alhliða þjónustu við sparifjár- og innlánseigendur á sviði eignastýringar. Þá mun bankinn veita sérhæfða fjármálaþjónustu með áherslu á umbreytingaverkefni.

Fyrstur íslenskra banka innleiðir Kvika nýja fjárfestingastefnu, partnership banking, sem snýr að samvinnu bankans og viðskiptavinarins. Stefnan miðar að heildarhag allra - viðskiptavina, eigenda og starfsmanna Kviku.

„Með nafnabreytingunni erum við að stíga síðasta formlega skrefið í sameiningu tveggja öflugra fjármálafyrirtækja. Að vissu leyti er þetta nýtt upphaf fyrir bankann, sem þó byggir áfram á þeim góða grunni sem lagður var í Straumi fjárfestingabanka og MP banka. Við erum afskaplega ánægð með að vera orðin Kvika og vonum að viðskiptavinir verði jafn ánægðir með nýtt nafn og breyttar áherslur sameinaðs banka,“ segir Sigurður Atli Jónsson forstjóri.

 
MP Banki og Straumur sameinuðust fyrr á þessu ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×