Menning

Jafnræði á Grímunni

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Ekkert verk skaraði fram úr á Grímuverðlaununum, sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í gær. Til marks um jafna skiptingu féllu verðlaunin í flokkum sýningar ársins, leikrits ársins og fyrir leikara og leikonu í aðal- og aukahlutverkum öll sitt hverri sýningunni í hlut.

Macbeth dró vagninn með fern verðlaun, þar á meðal sem sýning ársins en einnig fékk það verðlaunin fyrir lýsingu, tónlist og hljóðmynd. Englar alheimsins hlutu þrenn verðlaun; sem leikrit ársins og fyrir búninga og leikmynd. Þetta kemur óneitanlega á óvart. Margir spáðu Englunum meiri velgengni á Grímuverðlaunahátíðinni; verkið hefur fengið lofsamlega dóma og góða aðsókn og fékk flestar Grímutilnefningar, alls níu. Macbeth var aftur á móti umdeildara og særði meðal annars fram ritdeilu milli þeirra Hallgríms Helgasonar rithöfundar og Jóns Viðars Jónssonar, leiklistargagnrýnanda DV, fyrr á árinu. Samstarf Þjóðleikhússins og Andrews við uppsetningu á Shakespeare hefur hins vegar reynst farsælt, en Lér konungur hlaut flest verðlaun á Grímunni 2011, alls sex.

Það voru mestmegnis gamalkunn andlit sem stigu á svið í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Kristbjörg Kjeld hlaut verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki annað árið í röð fyrir Jónsmessunótt Hávars Sigurjónssonar. Ólafur Darri var valinn leikari ársins í aðalhlutverki fyrir Mýs og menn. Þetta er í fyrsta sinn sem hann hlýtur verðlaunin í þessum flokki en hann hefur tvívegis verið verðlaunaður fyrir leik í aukahlutverki.

Brynhildur Guðjónsdóttir var valin leikkona ársins í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Gullregni. Þetta eru fjórðu Grímuverðlaunin sem Brynhildur hlýtur fyrir leik, tvö fyrir aðalhlutverk og tvö fyrir auka. Eini leikarinn til að taka við verðlaunastyttu í fyrsta sinn, var Hilmar Guðjónsson. Ragnar Bragason, sem hlotið hefur einna flest Edduverðlaun, bætti fyrstu Grímunni í safnið í gær en hann var valinn leikstjóri ársins fyrir frumraun sína á leiksviði, Gullregn.

Vytautas Narbutas hlaut einnig sín fyrstu Grímuverðlaun fyrir leikmynd í Englum alheimsins. Filippía I. Elísdóttir hlaut verðlaun fyrir búninga í sömu sýningu en þetta er í fimmta sinn sem hún hlýtur Grímuverðlaunin. Gunnar Eyjólfsson var heiðraður fyrir framlag sitt til leiklistar. Þá hlaut Kristján Ingimarsson og leikhópur hans, Neander, sprotann fyrir uppfærsluna á verkinu Blam! í samstarfi við Borgarleikhúsið.

Alls hlutu sýningar Þjóðleikhússins átta verðlaun á móti fimm verðlaunum sem runnu til Borgarleikhússins, fyrir utan samstarfssýningar. 


Tengdar fréttir

Macbeth sýning ársins

Macbeth í leikstjórn Benedicts Andrews fékk verðlaun fyrir sýngu ársins á Grímunni – íslensku sviðslistaverðlaununum sem voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×