Menning

„Ó­þekka barnið“ í ís­lenskri mynd­list fer nýjar leiðir

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Snorri Ásmundsson opnar sýningu á abstrakt málverkum næstkomandi laugardag.
Snorri Ásmundsson opnar sýningu á abstrakt málverkum næstkomandi laugardag. Vísir/Vilhelm

„Ég hef auðvitað upplifað ýmis konar atburði og tráma eins og margir,“ segir myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson og bætir við að mikil heilun eigi sér stað þegar hann máli. Hann opnar sýninguna Rex Spirituum næstkomandi laugardag í VEST.

Málverkin á sýningunni eru öll unninn með akrýlmálningu og olíu-pastel í abstrakt stíl. Er um að ræða fyrstu algjörlega abstrakt sýningu Snorra á hans langa ferli.

Verkin eru að sögn Snorra máluð með tilfinningalegu innsæi og eru nokkurs konar frásagnir af markverðum atburðum og þá líka hversdagsleikanum í lífi listamannsins.

„Þetta er jafnvel einhverskonar línurit af tíðnisviðum eða frumeindum á tilfinningasviðinu. Ég mála af ástríðu og það er mikil heilun sem á sér stað og heilunin endurspeglast í verkunum. Ég hef auðvitað upplifað ýmis konar atburði og tráma eins og margir. En mér finnst hið óræða mjög spennandi.“

Glettinn en grafalvara

Listamaðurinn hefur gengið langa göngu áður en abstrakt málverkið tók hug hans allan. 

„Þótt ég sé glettinn er mér grafalvara og stundum á fólk erfitt með að greina muninn á alvörunni og glensinu. Abstrakt málverkin eru tímabundin niðurstaða af löngum og ævintýralegum ferli sem og áralangri vinnu.

Mér finnst samtalið alltaf nauðsynlegt en ef það er „toxic“, heimskt og byggt af fordómum og ferköntuðum hugsunargangi eins og samtalið í samtímanum vill oft verða er það auðvitað engum til gagns.

Abstrakt málverk getur sagt meira heldur en heil doktorsritgerð. Ég hugsa abstrakt og hef alltaf gert svo abstraktmálverkið hlaut að koma, þótt ég hafi verið feiminn við það.

En guð hvað það gerir mikið fyrir mig og hvað ég nýt þess að mála. Mér líður eins og ég sé komin heim og að ég sé í samtali við andanna, í bili auðvitað. 

Þaðan kemur líka nafnið á sýningunni. Rex Spirituum þýðir konungur andanna en mér líður einmitt eins og konungi andanna þegar ég mála.“

„Óþekka barnið í íslenskri myndlist“

Í fréttatilkynningu kemur eftirfarandi fram:

„Snorri Ásmundsson er fæddur árið 1966 á Akureyri. Hann hefur verið starfandi sem myndlistarmaður í á þriðja tug ára og hefur á þeim tíma stundum verið kallaður óþekka barnið í íslenskri myndlist. Snorri hefur í gegnum tíðina staðið fyrir ýmsum list- og samfélagsgjörningum sem margir hafa vakið mikla athygli.

Hann hefur í gegnum tíðina haldið fjölda einkasýninga sem og samsýninga. Listastefna Snorra hefur þróast og breyst mikið í gegnum tíðina en hann hefur til að mynda fengist við allt frá abstrakt myndheimum upp í portret myndir. Rauði þráðurinn sem hefur verið gegnumgangandi í ferli Snorra er hve litrík verkin hans eru.“

Sýningin opnar sem áður segir næstkomandi laugardag 9. mars og verður í sex vikur. Opnun stendur á milli klukkan 14:00 og 16:00 í VEST, Dalvegi 30.


Tengdar fréttir

„Ég er ekkert að grínast, það er algjör alvara í þessu“

Listamaðurinn og lífskúnstnerinn Snorri Ásmundsson er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Þar ræðir hann um lífið, listsköpunina, húmorinn, alvarleika lífsins og mikilvægi þess að fólk stimpli hann ekki sem einhvern grínista.

„Líf mitt er meira og minna bara einn gjörningur“

Snorri Ásmundsson er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Hann er listamaður sem takmarkar sig ekki við einn listmiðil, ber marga hatta og er meðal annars gjörningalistamaður, myndlistarmaður, lífskúnstner og frambjóðandi svo eitthvað sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×