Menning

Grinda­víkur­bær heiðurs­gestur Menningar­nætur 2024

Atli Ísleifsson skrifar
Mikil stemmning er jafnan í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt í ágúst á ári hverju.
Mikil stemmning er jafnan í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt í ágúst á ári hverju. Vísir/Vilhelm

Grindavíkurbær verður heiðursgestur Menningarnætur Reykjavíkurborgar þann 24. ágúst 2024. Tilefnið er vinatengsl bæjarfélaganna og fimmtíu ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar í ár.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að bæjarstjórn Grindavíkur hafi þegið boðið og þakki borgarstjóra og borgarráði Reykjavíkur þann heiður sem Grindavíkurbæ sé sýndur af þessu tilefni.

Haft er eftir Einari Þorsteinssyni, borgarstjóra, að hann fagni þátttöku Grindavíkurbæjar. 

„Það er okkur mikill heiður að fá að bjóða Grindvíkingum að vera heiðursgestir á Menningarnótt í ár. Grindavíkingar hafa gengið í gegnum miklar hremmingar, sem því miður sér ekki fyrir endann á. Þegar á reynir er mikilvægt að sýna stuðning og efla vinatengsl. Grindavík fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli sínu í ár og það er fullt tilefni til þess að sýna samtakamátt og fagna því saman,“ er haft eftir Einari.

Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og er hátíðin ávallt haldin fyrsta laugardag eftir 18. ágúst en þann dag árið 1786 fékk Reykjavíkurborg kaupstaðarréttindi. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni.

Sveitarfélög eða félagasamtök hafa í gegnum árin verið heiðursgestir á Menningarnótt í þeim hópi eru meðal annarra Ísafjörður, Akranes, Þórshöfn í Færeyjum, Blindrafélagið, stuðningssamtökin Support for Ukraine Iceland og í fyrra var það Vestmannaeyjabær sem þá hélt upp á að 50 ár voru liðin frá goslokum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×