Innlent

Hvetja Björgvin til að stíga til hliðar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ungum jafnaðarmönnum er brugðið vegna frétta sem berast af varaþingmanni Samfylkingarinnar.
Ungum jafnaðarmönnum er brugðið vegna frétta sem berast af varaþingmanni Samfylkingarinnar. vísir/anton brink
Miðstjórn Ungra jafnaðarmanna hefur ákveðið að senda frá sér ályktun vegna frétta af Björgvini G. Sigurðssyni.

Fréttablaðið fjallaði um það í gær að Björgvin hefði dregið sér fé í starfi sínu sem sveitastjóri Ásahrepps en hann er, fyrrverandi viðskiptaráðherra.

„Ungum jafnaðarmönnum er brugðið vegna frétta sem berast af varaþingmanni Samfylkingarinnar, Björgvini G. Sigurðssyni. Björgvin fór ranglega með opinbera fjármuni í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps og brást þar með trausti almennings.

Mikilvægt er að skattgreiðendur standi í vissu um að opinberir fjármunir séu aðeins notaðir í almannaþágu en renni ekki í vasa opinberra starfsmanna. Í því samhengi skiptir ekki máli hvort að fjármunir eigi að stoppa þar við í styttri eða lengri tíma.

Í ljósi þessa hvetja Ungir jafnaðarmenn Björgvin til að stíga til hliðar sem varaþingmaður Samfylkingarinnar uns hann nýtur aftur trausts flokks síns og almennings. Að lokum vilja Ungir jafnaðarmenn óska Björgvini góðs bata og velfarnaðar."


Tengdar fréttir

Fyrrverandi ráðherra rekinn vegna fjárdráttar í Ásahreppi

Björgvin G. Sigurðsson dró sér fé í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps. "Fyrst með litlum greiðslum hér og þar, en vatt upp á sig líkt og snjóbolti sem rúllar niður brekku,“ segir Egill Sigurðsson, oddviti Ásahrepps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×