Innlent

Guðlaugur Þór vill Icesave í þjóðaratkvæði

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave samninganna. Hann gefur ekki upp hvort hann ætli að greiða atkvæði með nýju samningunum.

Þriðja umræða um málið stendur yfir á Alþingi en atkvæðagreiðslan fer væntanlega fram í upphafi þingfundar á morgun. Í umræðum í kvöld sagði Guðlaugur afar erfitt að finna rök fyrir því að ekki fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um samningunum. Ennfremur sagði hann sterk málefnaleg rök vera fyrir því að þjóðin komi aftur að borðinu.

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, vildi vita hver afstaða Guðlaugs væri til nýju samninganna. Guðlaugur sagði að varaformaðurinn yrði að bíða til morguns þegar greidd verði atkvæði því þá fyrst myndi hann greina frá afstöðu sinni.

Þá tók Guðlaugur undir með Kristjáni Þór Júlíussyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem sagði fyrr í kvöld að málið væri hið ömurlegasta. Kristján sagði auk þess ekkert hæft í þeim fullyrðingum að Sjálfstæðisflokkurinn hefði skipt um skoðun í Icesave málinu.


Tengdar fréttir

„Alþingi á flótta undan þjóðinni er einskis virði“

Þingmenn Hreyfingarinnar gagnrýna harðlega meðferð Icesave frumvarpsins á Alþingi. Vinnubrögðin veki óneitanlega upp spurningar um siðferðilega stöðu þess. Að mati þingmannanna er Alþingi á flótta undan þjóðinni einskis virði.

Greining: Samþykkt Icesave markar tímamót

„Samþykkt Icesave-samkomulagsins mun marka tímamót í endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hrun. Samþykkt hins nýja samkomulags mun að öllum líkindum hafa jákvæð áhrif á aðgang íslenskra aðila að erlendu fjármagni og lækka áhættuálag á íslenskar fjáreignir.“

Þriðja umræða Icesave hafin á þingi

Þriðja umræða um Icesave frumvarpið er hafin á Alþingi en þingmenn ræddu störf þingsins áður en til hennar kom. Afbrigði voru samþykkt svo leggja mætti fram breytingartillögu í málinu sem gerir ráð fyrir því að þjóðin greiði atkvæði um málið að lokum.

Atkvæði greidd um Icesave í upphafi þingfundar

Alþingi mun að öllu óbreyttu samþykkja Icesave frumvarpið sem lög á morgun. Þriðja umræða um málið stendur enn yfir á Alþingi en atkvæðagreiðslan fer væntanlega fram í upphafi þingfundar á morgun.

Icesave á endaspretti í þinginu

Þriðja umræða á Alþingi um Icesave frumvarpið hefst í dag. Gert er ráð fyrir því að atkvæði verði greidd um málið fyrir helgi. Átján þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til forseta Íslands um að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×