Innlent

Gamalt hús fær nýtt líf

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
130 ára gamalt sögufrægt hús hefur nú fengið nýtt líf, en því hefur verið fundinn varanlegur staður í miðbænum eftir að hafa staðið falið í iðnaðarhverfi úti á Granda síðustu ár. 

Gröndalshúsið svokallaða stóð við Vesturgötu 16 B en Sigurður Jónsson, járnsmiður, byggði húsið árið 1882 úr timbri sem barst til Íslands með gríðarstóru skipi sem rak mannlaust um hafið og strandaði í Höfnum.

Sigurður bjó sjálfur í húsinu og hafði þar járnsmíðju til 1888 en þá eignaðist það skáldið og náttúrufræðingurinn Benedikt Gröndal og hefur það verið kennt við hann síðan. Hjörleifur Stefánsson, arkítekt, hefur haft umsjón með endurbótum á húsinu sem var fært í iðnaðarhverfið á Granda fyrir nokkrum árum.

Húsið var oft kallað Púltið, Skrínan eða Skattholið vegna hins sérkennilega byggingarlags, en það er tvílyft að framan og einlyft að aftan.

Búið var í húsinu til ársins 2004, en Reykjavíkurborg keypti það til varðveislu vegna menningarsögulegs gildis þess. Upphaflega stóð til að húsið yrði flutt í Árbæjarsafnið.


Tengdar fréttir

Gröndalshús í hættu

Undir lok vikunnar síðustu tók hópur manna sig til í Reykjavík og fór í blysför frá Þingholtsstræti að húsi Benedikts Gröndal við Vesturgötu 16b. Förin var gengin til að mótmæla áformum borgaryfirvalda sem nýlega keyptu húsið og hyggjast flytja það í Árbæ.

Gröndalshús í loftið í kvöld

Í kvöld verður Gröndalshús híft af sökkli sínum að Vesturgötu 16 b og flutt út í Örfirisey þar sem Völundarverk Reykjavík er tímabundið með aðsetur til endurgerðar eldri húsa samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Gröndalshús verður gert upp og flutt

„Þetta hús skiptir miklu fyrir sögu Reykjavíkur. Það er þarft að heiðra minningu Benedikts Gröndal og alls sem hann stóð fyrir varðandi bókmenntir og vísindi, og eins hefur húsið mjög sérstaka þýðingu í byggingarsögulegu tilliti. Því er mjög ánægjulegt að húsinu verði gert hátt undir höfði,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar.

Vatnsskemmdir í Gröndalshúsi

Nokkrar vatnsskemmdir urðu þegar rör fraus og sprakk í Gröndalshúsi við Vesturgötu fyrir skömmu. Húsið er illa einangrað og þrátt fyrir upphitun gaf einn ofninn sig í kuldakastinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×