Menning

Ís­lensk strandmenning í brenni­depli á Akra­nesi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Akranesi. Gamli Akranesvitinn er frá árinu 1918. Sá nýi var byggður á árunum 1943 til 1944 en tekinn í notkun árið 1947.
Frá Akranesi. Gamli Akranesvitinn er frá árinu 1918. Sá nýi var byggður á árunum 1943 til 1944 en tekinn í notkun árið 1947. Arnar Halldórsson

Íslensk strandmenning – staða hennar og framtíð er yfirskrift málþings sem Vitafélagið – íslensk strandmenning stendur fyrir á Akranesi eftir hádegi í dag, mánudag 4. mars. Þar verða fyrirlestrar, tónlist og umræður um stöðu og fjölbreytileika íslenskrar strandmenningar og því meðal annars velt upp hvort þessi menningararfur Íslendinga sé í hættu.

Málþingið hefst í Tónlistarskólanum á Akranesi klukkan 13 með því að Sigmundur Ernir Rúnarsson málþingsstjóri býður gesti velkomna. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins - íslenskrar strandmenningar, setur þingið og flytur aðfararorð.

Í fyrsta fyrirlestrinum fer sagnfræðingurinn Árni Daníel Júlíusson yfir sögu strandmenningar. Minjavörður Vestfjarða, Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur, ræðir síðan um minjastaði við sjávarsíðuna og menningararf í hættu í erindi sem hún nefnir Sjórinn gefur og sjórinn tekur.

Í pallborði að því loknu taka þátt Anita Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafnsins, Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Helena Guttormsdóttir, lektor við Landbúnaðarháskólann, og Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar.

Frá Síldarminjasafninu á Siglufirði.Jóhann K. Jóhannsson

Hugur og hönd nefnist annar hluti málþingsins. Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor við Háskóla Íslands, fjallar um strandmenningu í bókmenntum. Eyjólfur Eyjólfsson, tónlistarmaður og þjóðfræðingur, kemur svo með framlag sem hann nefnir Úr baðstofu í Fab Lab – íslenska langspilið í nýju ljósi.

Eivind Falk, framkvæmdastjóri Norsk Håndverksinstitutt, flytur erindi sem hann nefnir Hvernig varðveitum við handverkið? Eivind er sérlegur ráðgjafi UNESCO, menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Í framhaldi af því setjast á pallborð þau Sigrún Franklín, leiðsögumaður á Reykjanesi, Linda María Ásgeirsdóttir, sem rekur Verbúðina 66 um mat og strandmenningu í Hrísey, Birkir Þór Guðmundsson bátasmiður og Sigurlaug Dagsdóttir, starfsmaður verkefnisins Lifandi hefðir.

Þriðji hluti málþingsins nefnist Nútíð og framtíð. Catherine Chambers frá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar ræðir um strandmenningu hér og nú og framtíð sjávarbyggða. Þá koma þær Katrín Sóley Bjarnadóttir og Edda Kristín Eiríksdóttir, sérfræðingar Umhverfisstofnunar, og fjalla um skemmtiferðaskip og vöktun stranda.

Loks setjast á pallborð Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri, Lúðvík Geirsson, formaður Hafnasambands Íslands, Andrés Skúlason, formaður fornminjanefndar, og Erlendur Bogason, kafari á Hjalteyri.

Áætlað er að málþinginu ljúki klukkan 17.15 með kveðju Haraldar Benediktssonar, bæjastjóra Akraneskaupstaðar.

Boðið er upp á ókeypis rútuferð frá Laugardalsvelli klukkan 11.15 ef fleiri en fimmtán skrá sig hjá Vitafélaginu.


Tengdar fréttir

Svipuð verðmæti og handritin

Mikill fjöldi minja um allt land er í stórhættu vegna sjávarrofs og mun gríðarlegt magn ómetanlegra menningarverðmæta hverfa í sjóinn á næstu árum verði ekkert að gert. Sérfræðingur um sjóminjar hér á landi segir menningarlegt stórslys í uppsiglingu.

Borgin bjargi minjum

Vitafélagið – íslensk strandmenning skorar á borgaryfirvöld að sinna viðhaldi og með því varðveita einstakar sögu- og menningarminjar sem eftir eru í Grímsstaðavör fyrir komandi kynslóðir, og gera þær aðgengilegar sem mikilvægan þátt í strandmenningarsögu Reykjavíkur.

Kútter Sigurfari verði tekinn í sundur

Stjórn Byggðasafnsins í Görðum hefur lagt til að Akranesbær taki kútter Sigurfara í sundur og geymi þangað til nægur peningur fæst í endurbyggingu hans.

Norræn strandmenning haldin hátíðleg í Ósló

Norræna strandmenningarhátíðin er sú fjórða í röðinni en fyrsta hátíðin var haldin á Húsavík 2011, Íslenska vitafélagið er hugmyndasmiður og frumkvöðull hátíðanna.

Sigla afmælishring um Ísland

Eikarbátnum Húna II verður í maí siglt umhverfis landið til að minnast þess að hálf öld er síðan báturinn var smíðaður á Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×