Innlent

Stjórn Prestafélagsins fundar í dag í skugga afsagnar formanns

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Arnaldur Bárðarson tilkynnti um afsögn sína sem formaður Prestafélagsins í fyrradag eftir að Félag prestvígðra kvenna steig fram og lýsti yfir vantrausti vegna umdeildra ummæla sem hann lét falla um viðkvæm mál í viðtali hjá Útvarpi Sögu.
Arnaldur Bárðarson tilkynnti um afsögn sína sem formaður Prestafélagsins í fyrradag eftir að Félag prestvígðra kvenna steig fram og lýsti yfir vantrausti vegna umdeildra ummæla sem hann lét falla um viðkvæm mál í viðtali hjá Útvarpi Sögu. Vísir/Vilhelm t.v. Kirkjan.is t.h.

Stjórn Prestafélags Íslands fundar í dag um næstu skref nú í kjölfar þess að formaður félagsins hefur sagt af sér eftir vantraustsyfirlýsingu prestvígðra kvenna. Varaformaður félagsins segir forgangsmál að lægja öldurnar.

Arnaldur Bárðarson tilkynnti um afsögn sína sem formaður Prestafélagsins í fyrradag eftir að Félag prestvígðra kvenna steig fram og lýsti yfir vantrausti vegna umdeildra ummæla sem hann lét falla um viðkvæm mál í viðtali hjá Útvarpi Sögu.

For­maðurinn segir af sér og er hættur í Presta­fé­laginu Séra Eva Björk Valdimarsdóttir, varaformaður Prestafélags Íslands, segir að stjórnin muni hittast á fundi í dag til að ræða um næstu skref.

„Við þurfum að lægja öldurnar og græða sár og svo getum við farið að einbeita okkur að því hver næstu skref eru; hvernig við viljum hafa félagið okkar í framtíðinni og hvaða menningu við viljum hafa þar.“

Eva var spurð hvort hún hefði íhugað að gefa formlega kost á sér í formannsembættið.

„Félag Prestvígðra kvenna lýsti vantrausti á formanninn ekki á stjórnina þannig að ég held að stjórnin sitji bara traust og næstu skref eru bara að ákveða hvenær er góður tími til að halda auka aðalfund til þess að kjósa nýjan formann. Ég hef ekki sóst eftir því að vera formaður en ég vil heldur ekki skorast undan því á meðan staðan er svona í félaginu. Við þurfum að meta stöðuna hvernig hún er í félaginu og hvað er best fyrir okkar félagsfólk núna.“

Arnaldur sagði að það kynni ekki góðri lukku að stýra að félagið væri hvort tveggja í senn, fagfélag og stéttarfélag og hvatti félagsmenn til að elta sig yfir í Fræðagarð.

„Mér finnst þetta mjög leiðinlegt að hann sé að hvetja fólk til að segja sig úr félaginu við þessar aðstæður. Það má alveg taka þá umræðu hvort okkur sé betur borgið sem stéttarfélag innan Fræðagarðs og að semja við okkar vinnuveitendur þar en það er eitthvað sem við ætlum ekki að gera þegar staðan er svona í félaginu. Við þurfum bara að fyrst að lægja öldurnar, skoða málin vel og skoða hvaða kostir eru í stöðunni og svo þurfum við bara að leggja það fyrir fund félagsmanna og það er best að félagið taki þessa ákvörðun í sameiningu.“


Tengdar fréttir

Krefjast afsagnar formanns Prestafélagsins vegna viðtals við Útvarp sögu

Félag prestvígðra kvenna krefst þess að Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segi af sér vegna ummæla hans í viðtali við Útvarp sögu á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félags Prestvígðra kvenna sem gefin er út eftir fund félagsins í Langholtskirkju í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×