Innlent

Mótmæltu Vinum Venesúela á Lækjartorgi

Andri Eysteinsson skrifar
Nokkrum metrum frá mótmælum Vina Venesúela stóð hópur sem mótmælti boðskapi þeirra.
Nokkrum metrum frá mótmælum Vina Venesúela stóð hópur sem mótmælti boðskapi þeirra. Aðsend/Arnór Fannar Reynisson
Á sama tíma og samtökin Vinir Venesúela og samtök Hernaðarandstæðinga mótmæltu ,að eigin sögn heimsvaldastefnunni og íhlutun Bandaríkjanna í Suður-Ameríkuríkinu Venesúela, fyrir framan stjórnarráðið í Lækjargötu hafði hópur fólks safnast saman á Lækjartorgi og mótmælti mótmælum Vina Venesúela og Samtaka Hernaðarandstæðinga.

Skilti með áletrunum á borð við „Takk Ísland! For a free Venezuela“ , „If you want to know the truth about the situation in Venezuela, ask a Venezuelan!“ (Ef þú vilt vita sannleikann um ástandið í Venesúela, spurðu þá Venesúelamann) og „Þið eruð ekki að tala fyrir okkur,“ sáust á Lækjartorgi í dag.

Venesúelskir ríkisborgarar, sem búa hér á Íslandi hafa undanfarið lýst yfir ánægju sinni með forsetann Juan Guaido til dæmis í fjölmiðlum og hafa fjölmargir íbúar Venesúela þakkað Íslandi stuðninginn á netmiðlum.



Í spilaranum neðst í fréttinni má sjá myndskeið, tekið af Arnóri Fannari Reynissyni sem staddur var miðja vegu milli mótmælanna.

Gagnrýni mótmælenda gegn Vinum Venesúela snerust að einhverju leyti að því að enginn Vina Venesúela hafi í raun verið frá landinu og þekki ástandið samkvæmt viðmælanda fréttastofu. Vinir Venesúela séu í raun bara vinir Nicolas Maduro.


Tengdar fréttir

Guaido segir hermenn snúa baki við Maduro

Juan Guaido, starfandi forseti Venesúela, segir að 600 hermenn hafi snúið baki við Nicolas Maduro, forseta Venesúela, á síðustu dögum. Bandaríkin setja nýjar þvinganir á sex háttsetta embættismenn í Maduro-stjórninni.

Rafmagnsleysi í Venesúela

Skólar voru enn lokaðir og vinnustaðir sömuleiðis í Venesúela í gær á öðrum degi umfangsmikils rafmagnsleysis.

Vísa þýska sendiherranum frá Venesúela

Ríkisstjórn Nicolasar Maduro sakar þýska sendiherrann um að skipta sér af innanríkismálum landsins og að taka sér stöðu með öfgaöflum í stjórnarandstöðunni.

Vinir Venesúela mótmæltu við Stjórnarráðið

Samtök hernaðarandstæðinga og Vinir Venesúela, stóðu í dag að útifundi fyrir utan Stjórnarráðið í Lækjargötu til þess að mótmæla heimsvaldastefnunni og íhlutun Bandaríkjanna í Suður-Ameríkuríkinu Venesúela




Fleiri fréttir

Sjá meira


×