Lífið

Spjallað við Siggu Kling á Facebook Live - Mars

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir mars birtust á Vísi í morgun.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fór af stað með skemmtilega nýjung fyrir nokkrum mánuðum en þá var hægt að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook-síðu Vísis. Þetta verður að sjálfsögðu á dagskrá á ný í dag og býðst lesendum að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar. 

Útsendingin hefst klukkan 14:00.


Tengdar fréttir

Marsspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Þig langar ekki í ljúft og lipurt líf

Elsku Vatnsberinn minn, kannski virðistu vera alveg venjulegur og alls ekki skera þig úr með eitt né neitt, en það er bara það sem þú virðist vera og þú hefur skrautlegan fatastíl, eða skemmtilegan, eða töff og þú ert eitthvað svo persónulegur með allt sem þú gerir eða nálgast.

Marsspá Siggu Kling – Ljónið: Fáðu lánaða dómgreind eða visku

Elsku hjartans tilfinningaþrungna Ljónið mitt, þú ert einhvern veginn eins og hlaðborð af öllum réttum og það er svo erfitt að útskýra þig eða þetta hlaðborð, en hversu spennandi er ekki sú manneskja sem þú í raun og veru getur ekki útskýrt?

Marsspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Þú ert á tímabili ferðalaga

Elsku Bogmaðurinn minn, þú ert svo mögnuð tilfinningavera og þar af leiðandi er lífið þitt búið að vera svolítið eins og hávaðarok eða lygna og á góðri ensku gæti það þýtt "rollercoaster“, sem ef þú skoðar betur gæti bara verið ansi spennandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×