Lífið

Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Allir hundar kunna að rekja spor.
Allir hundar kunna að rekja spor. Vísir/Vilhelm

Sporaþjálfun, tannheilsa hunda og aðalatriðin þegar kenna á hundi að slaka á eru til umfjöllunar í nýjasta þættinum af Hundarnir okkar á Vísi. Þáttinn má horfa á neðst í fréttinni. 

Í síðustu viku var farið yfir umgengni barna við hunda og þær margvíslegu áskoranir þegar hvolpur kemur inn á heimilið. Í fyrsta þættinum var skyggnst inn í þjálfun veiðihunda, hvernig má kenna sækja og skila ásamt mikilvægum atriðum í innkallsþjálfun. Þá voru gefin góð ráð varðandi handtök við að klippa klær hunda.

Fram kemur meðal annars að allir hundaeigendur geti prófað sporaþjálfun heima hjá sér.

„Í rauninni þurfum við ekki að kenna hundum að rekja spor, þetta er eitthvað sem þeir kunna bara. Þetta kemur bara frá náttúrunni. Það sem við hinsvegar gerum er að við kennum þeim að vita hvenær þeir eiga að gera það,“ segir Steinar Gunnarsson annar þáttastjórnanda við kollega sinn Heiðrúnu Villu Ingudóttur.

Klippa: Hundarnir okkar - Sporþjálfun, slökun og tannheilsa





Fleiri fréttir

Sjá meira


×