Lífið

Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Karin rekur verslunina Nola sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi.
Karin rekur verslunina Nola sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi.

Karin Kristjana Hindborg, eigandi snyrtivöruverslunarinnar Nola, og unnusti hennar Friðrik Runólfsson hafa sett fallega hæð á Seltjarnarnesi á sölu. Um er að ræða eign á efstu hæð í þríbýlishúsi frá árinu 1967 sem var teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt. Ásett verð er 128,9 milljónir. 

„Drauma útsýnishæðin okkar komin á sölu. Hér hefur verið yndislegt að vera en það er komið að öðrum að njóta,“ skrifar Karin og deilir eigninni á Facebook. 

Stofurýmið er bjart og opið með fallegu útsýni.Fasteignaljósmyndun

Heimilið er innréttað á smekklegan máta þar sem hlýir litatónar eru í aðalhlutverki. Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu og björtu rými með stórbrotnu útsýni út á hafið, til Gróttu og Snæfellsness. 

Í eldhúsi eru framhliðar frá HAF-studio úr eik og kvartssteinn á eyju og borðum. Eldhúsið var nýlega endurnýjað og teiknað af hönnunarfyrirtækinu HAF-studio. Á gólfum er ljóst fiskibeinaparket sem setur sjarmerandi svip á heildarmyndina. Samtals eru fjögur svefnherbergi og eitt baðherbergi.

Nánari upplýsingar um eignina á fasteignavef Vísis.

Gengið er upp teppalagðar tröppur á hæðina.Fasteignaljósmyndun
Eldhúsið var endurnýjað á smekklegan máta og hannað af HAF-studio.Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Brúna litatónar setja hlýlegan svip á heildarmyndina.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergi var endurnýjað árið 2021.Fasteignaljósmyndun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×