Erlent

Forsætisráðherrann fær ekki að segja af sér

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Saad Hariri í Líbanon í gær.
Saad Hariri í Líbanon í gær. Nordicphotos/AFP
Saad Hariri, forsætisráðherra Líbanon, afhenti Michel Aoun forseta afsagnarbréf sitt í gær. Hariri tilkynnti um afsögn sína í upphafi mánaðar þegar hann var staddur í Sádi-Arabíu en hafði ekki getað afhent afsagnarbréfið þar sem hann dvaldi um stund þar í landi áður en hann hélt til Frakklands og þaðan heim til Líbanons.

„Ég afhenti hæstvirtum forseta afsagnarbréf mitt en hann bað mig um að fresta afsögn minni tímabundið á meðan hann íhugar ástæður afsagnarinnar. Ég tjáði samþykki mitt fyrir þessari ákvörðun og vona að hún leiði til ábyrgra viðræðna um framhaldið,“ sagði Hariri sem ljóst er að mun gegna forsætisráðherra­embættinu enn um sinn.

Ástæðurnar sem Aoun hyggst kanna hafa verið ræddar í þaula allt frá því Hariri flutti ávarp sitt í sádiarabísku höfuðborginni Riyadh. Stjórnmálaskýrendur víða um heim sem og heimildarmenn fjölmiðla innan líbönsku ríkisstjórnarinnar fullyrða að Sádi-Arabar hafi í raun neytt Hariri til að segja af sér vegna þess hve litlum árangri hann hafði náð í baráttunni gegn Hezbollah-samtökunum. Heimildarmaður CNN sagði til að mynda að orðalag ávarpsins væri gjörólíkt orðalagi Hariri og því væri líklegt að Sádi-Arabar hefðu skrifað ávarpið.

Einnig hafa Sádi-Arabar verið ásakaðir um að hafa haldið Hariri í Sádi-Arabíu gegn vilja hans. Þótt bæði Sádi-Arabar og Hariri sjálfur hafi neitað þessum ásökunum töldu forseti og utanríkisráðherra Frakklands nauðsynlegt að skerast í leikinn og ræða við málsaðila. Fullvissaði Jean-Yves Le Drian í heimsókn sinni til Sádi-Arabíu að Hariri væri frjáls ferða sinna.

Rótin að þessum vanda Líbanons liggur í því að ríkið er nú miðpunktur eins konar kalds stríðs Írans og Sádi-Arabíu sem keppa nú um völd og áhrif á svæðinu. Íran styður Hezbollah en Sádi-Arabar hafa aftur á móti lengi stutt Líbanon, einkum Framtíðarhreyfinguna sem Hariri er í forsvari fyrir. 


Tengdar fréttir

Fráfarandi ráðherra sagður brátt á heimleið

Saad al-Hariri, fráfarandi forsætisráðherra Líbanons, er frjáls ferða sinna og mætti ferðast til Frakklands hvenær sem er. Þetta sagði Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands, í gær. Þá sagði hann fund sinn með Hariri í Sádi-Arabíu hafa verið góðan, Hariri væri heill heilsu og hann myndi senn snúa aftur til Líbanons.

Forsætisráðherrann sagður fangi Sádi-Araba

Líbanska ríkisstjórnin telur að Saad al-Hariri, fráfarandi forsætisráðherra Líbanons sem tilkynnti um afsögn sína um síðustu helgi, sé haldið gegn vilja sínum í Sádi-Arabíu.

Hitnar í köldu stríði Írana og Sádi-Araba

Sádi-Arabar segja Íransstjórn nánast lýsa yfir stríði með stuðningi sínum við uppreisnarmenn í Jemen og Líbanon. Afsögn forsætisráðherra Líbanons talin afleiðing þrýstings frá Sádi-Aröbum. Atburðir síðustu daga þykja líklegir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×