Erlent

Segir myndir af lögregluofbeldi í Barcelona falsaðar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögregla fór fram af mikilli hörku gagnvart mótmælendum.
Lögregla fór fram af mikilli hörku gagnvart mótmælendum. Vísir/Getty
Utanríkisráðherra Spánar segir það af og frá að yfirvöld á Spáni hafi framið „valdarán“ í Katalóníu. Þá segir hann að myndir af lögregluofbeldi gegn mótmælendum í Barcelona á kjördag fyrr í október séu falsaðar.

Alfonso Dastis var í viðtali við Andrew Marr á BBC þar sem hann svaraði ásökunum forseta katalónska þingsins sem sakað hefur spænsku ríkisstjórnina um að hafa framið valdarán í Katalóníu með þeim aðgerðum sem tilkynntar voru í gær.

„Ef einhver hefur framið valdarán, þá er það héraðsstjórnin í Katalóníu,“ sagði Dastis.

Mikil ólga hefur verið í samskiptum ríkisstjórnar Spánar og héraðstjórnar Katalóníu frá því að Katalónar kusu með því að lýsa yfir sjálfstæði þann 1. október síðastliðinn.

Hefur ríkisstjórnin reynt að koma í veg fyrir að Katalónar lýsi yfir sjálfstæði með öllum tiltækum ráðum. Þá var spænska lögreglan send til Katalónía á kjördag. Þótti hún fara offorsi og særðust hundruð í átökum við lögregluna, vöktu fréttamyndir af átökunum mikla athygli.

Dastis segir að nú hafi verið sýnt fram á að sumar þessara mynda hafi verið falsaðar.

„Sýnt hefur verið fram á að margar af þessum myndum eru falsaðar. Ef einhver beitti valdi var það gert á hóflegan hátt af þeirri ástæðu að komið var í veg fyrir að löggæsluyfirvöld gætu sinnt sínu starfi,“ sagði Dastis.

Þú ert að halda því fram að myndir af spænsku lögreglunni að grípa til harkalegra aðgerða á kjörstöðum séu allar falsaðar?

„Ég er ekki að segja að allar séu falsaðar en sumar þeirra eru það,“ sagði Dastis án þess þó að útskýra mál sitt nánar.

Spænska þingið mun á föstudag taka til umræðu tilllögu spænsku ríkisstjórnarinnar um að reka héraðstjórn Katalóníu og halda nýjar kosningar þar til þess að kveða í kútinn allar tilraunir Katalóna til þess að lýsa yfir sjálfstæði frá Spáni.

Gangi tillagan eftir mun ríkisstjórn Spánar öðlast vald yfir fjármálum, lögreglu og opinberum fjölmiðlum í Katalóníu, auk þess sem að völd þingsins þar muni skerðast til muna.


Tengdar fréttir

Áfram mótmælt og skellt í lás

Verkalýðsfélög stóðu fyrir allsherjarverkfalli í Katalóníu í gær. Mikill fjöldi mótmælti spænskum yfirvöldum og áframhaldandi veru óeirðalögreglu í héraðinu.

Ætla að svipta Katalóníu sjálfsstjórn

Carles Puigdemont, leiðtogi Katalóníu, heldur kröfu sinni um viðræður við stjórnvöld í Madríd um sjálfstæði héraðsins til streitu.

Mikil spenna á Spáni

Íbúar Katalóníu setja stefnuna á kjörklefa á morgun til að greiða atkvæði um sjálfstæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×