Menning

Með­göngu­ljóð frum­flytja nýja smá­sögu á Vísi

Magnús Guðmundsson skrifar
Birkir Blær, Álfur Birkir Bjarnason, Valgerður Þóroddsdóttir, Fríða Ísberg og Kristján Guðjónsson eru á meðal ungu skáldanna sem starfa innan vébanda Meðgönguljóða og frumflytja smásögu á Vísi í dag.
Birkir Blær, Álfur Birkir Bjarnason, Valgerður Þóroddsdóttir, Fríða Ísberg og Kristján Guðjónsson eru á meðal ungu skáldanna sem starfa innan vébanda Meðgönguljóða og frumflytja smásögu á Vísi í dag. Vísir/Ernir
Meðgönguljóð er jaðarbókaútgáfa ungra ljóðskálda sem var stofnuð árið 2011. Síðan þá hafa Meðgönguljóð vaxið nokkuð jafnt og þétt og fengið mjög svo jákvæðar viðtökur í bókmenntaheiminum. Meðgönguljóð leggja mikla áherslu á að kynna til leiks ung og efnileg skáld sem og að auka aðgengi að ljóðinu í dagsins önn.

Birkir Blær er á meðal ungu skáldanna innan vébanda Meðgönguljóða en samstarf hans við útgáfuna hófst með óvenjulegum hætti á síðasta ári með ljóðabók sem kom út í athugasemdakerfi Vísis þar sem Birkir Blær skipti ljóðum inn fyrir athugasemdir.

„Ég er reyndar meira í prósanum en ljóðinu en mér fannst þessi hugmynd sem var unnin í samstarfi við Vísi og Meðgönguljóð of góð til þess að láta hana fram hjá sér fara. Valgerður Þóroddsdóttir hjá Meðgönguljóðum vann að þessari hugmynd með mér og í framhaldinu fórum við að tala við fleiri skáld innan forlagsins með þá hugmynd að færa út kvíarnar í útgáfunni. Okkur langaði einkum til þess að gefa út eina og eina smásögu í senn þar sem það er form sem hentar ákaflega vel fyrir lesendur til þess að grípa með sér í dagsins önn. Þetta er leið til þess að færa skáldskap nær fólki, hafa hann aðgengilegan og hversdagslegri.“

Í dag kemur út smásagan El Dorado eftir Birki Blæ sem verður fyrsta sagan í smásagnaseríu Meðgönguljóða.

Sagan birtist á myndbandi hér á Vísi í upplestri höfundar – án endurgjalds og aðgengileg í dagsins önn.

„Þessi birting er tilraun til að miðla íslenskum skáldskap á nýtískulegan hátt, svo áhugasamir geti nálgast sögurnar fyrirhafnarlaust. Fólk á ekki oft leið út í bókabúð, en nánast hver einasti maður gluggar örstutt inn á forsíðuna á Vísi á hverjum einasta degi og því kom upp sú hugmynd að smella íslenskri smásögu þar í hilluna.

Þeir sem hafa áhuga á íslenskum skáldskap geta þá gefið sér tíma til að hlusta á söguna, án þess að þurfa að gera sér sérstaka ferð út í bókabúð til að grafa hana upp,“ útskýrir Birkir Blær.

„Með smásagnaseríunni er markmiðið að gefa út eina og eina smásögu í senn eftir upprennandi höfunda og blása þannig lífi í smásagnahefðina á Íslandi. Þetta er nokkuð löng smásaga og hentar þeim best sem hafa nægan tíma til að halla sér aftur í sófanum heima og hlusta í rólegheitunum, eða þeim sem þurfa að vaska mjög mikið upp og geta haft lesturinn í eyrunum. Eða eitthvað í þeim dúr.“

Birkir Blær Ingólfsson.Vísir/Ernir
Sagan El Dorado er upphafspunktur á nýrri vegferð Meðgönguljóða. Forlagið hefur hingað til eingöngu fengist við útgáfu ljóðabóka, en í dag kynnir það tvær nýjar bókaseríur og mun héðan í frá einnig gefa út smásögur í seríunni Meðgöngumál og fræðigreinaseríuna Meðgöngufræ

Birkir Blær segir stefnuna vera að gefa út eina og eina smásögu í senn – í stað þess að gefa út heil smásagnasöfn – og sömuleiðis eina og eina fræðigrein.

„Með fræðigreinaseríunni vonumst við til þess að geta leyst fræðigreinar og vangaveltur úr heimi háskólasamfélagsins – sem oft og tíðum virkar dálítið lokað og óaðgengilegt – og gert þær að hversdagslegra lesefni sem á ekki aðeins erindi við háskólamenntaða spekinga, heldur einnig venjulegt ungt fólk í strætó.“

Til að fagna fyrstu smásögunni, sem og nýju seríunum tveimur sem væntanlegar eru, munu Meðgönguljóð standa fyrir upplestrarkvöldi og allsherjarfögnuði á Lofti Hosteli í kvöld. Þar auglýsir forlagið einnig eftir nýjum handritum, og upprennandi skáld og spekingar geta skilað handritum fyrir nýjar seríur Meðgönguljóða.

Hægt er að horfa á El Dorado eftir Birki Blæ í spilaranum hér ofar í fréttinni og á sjónvarpsvef Vísis.


Tengdar fréttir

Skiptir út kommentakerfinu fyrir ljóð

Birkir Blær Ingólfsson gefur út ljóðabók í dag sem eingöngu er hægt að nálgast á fréttavef Vísis þar sem lesendur geta skipt athugasemdakerfinu út fyrir ljóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×