Lífið

„Það er nokkuð ljóst að þeir sem bera ábyrgð á þessu eru risavaxnir fokking hálfvitar“

Stefán Árni Pálsson skrifar
John Oliver var ekkert að skafa af hlutunum.
John Oliver var ekkert að skafa af hlutunum. vísir
Samfélagsrýnirinn John Oliver lét allt flakka eftir atburðina í París í síðasta þætti sínum og talaði hann vægast sagt illa um þá aðila sem bera ábyrgð á hryðjuverkunum í borginni á föstudagskvöld.

Hryðjuverkamenn gerðu samræmdar árásir í París í Frakklandi á föstudaginn. Minnst 132 létu lífið og hundruð særðust í árásunum og þar af eru rúmlega hundrað í alvarlegu ástandi. Svo virðist sem að þrjú teymi hafi komið að árásunum.

„Það er nokkuð ljóst að þeir sem bera ábyrgð á þessu eru risavaxnir fokking hálfvitar,“ sagði Oliver í þættinum.

„Mögulega eru þeir að vinna með öðrum fokking hálfvitum og án efa að styðjast við hugsjón sem mætti kalla hálfvita-hugsjón,“ sagði Oliver og hélt áfram: „Fokkið ykkur, fokking hálfvitar.“

Oliver sagði einnig að ekkert af því sem þessir hálfvitar séu að reyna gera eigi eftir að virka.

Hér að neðan má sjá John Oliver fara mikinn í þætti sínum. Þátturinn verður sýndur í heild sinni á Stöð 2 annað kvöld kl 22:45.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×