Lífið

Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ás­dísi dömpað

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ásdís á ekkert sérlegan erfitt með að borða sterkan mat en sterkustu vængirnir tóku samt á.
Ásdís á ekkert sérlegan erfitt með að borða sterkan mat en sterkustu vængirnir tóku samt á.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi segist vera afar hrifin af sterkum mat. Hún nefnir leiðinlegustu Hollywood stjörnuna og segist hafa verið afar stressuð fyrir forsetaframboði, þó henni hafi liðið eins og Michael Jackson endurrisnum í miðbæ Reykjavíkur eftir kappræður á RÚV. Spurning hennar til Katrínar Jakobsdóttur hafi átt að vera táknræn. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta þætti Af vængjum fram, nýjum skemmtiþætti á Vísi í tilefni af forsetakosningum. Þar setjast forsetaframbjóðendur niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli. Von er á öllum forsetaframbjóðendum í þáttinn næstu vikur.

Þar tekur Ásdís óvenjulega útgáfu af þjóðsöngnum svo eitthvað sé nefnt. Hún átti frekar auðvelt með að borða sterku vængina, þó þeir hafi á endanum tekið á. „Þetta læðist aftan að manni, þetta er ennþá að eflast,“ segir Ásdís á einum tímapunkti.

Klippa: Af vængjum fram - Ásdís Rán Gunnarsdóttir

Vill brjóta blað í sögunni sem kyntákn

Í þættinum lýsir Ásdís því meðal annars að hún hafi verið mjög stressuð og með kvíðaköst áður en hún bauð sig fram. Þá segist hún vilja brjóta blað í sögu forsetakosninganna og embættisins með framboði sínu sem kyntákn. 

Ásdís ræðir líka spurningu sína til Katrínar Jakobsdóttur í kappræðum RÚV, þegar hún spurði Katrínu að því hvað henni finndist um að kyntákn líkt og hún sjálf hafi ákveðið að bjóða sig fram til forseta. Ásdís lýsir því hvers vegna hún ákvað að beina spurningunni til Katrínar. 

Þá eru ástarmál kyntáknsins rædd og hún spurð að því hvort hún hafi einhvern tímann gengið í gegnum það að vera dömpað. Svarið kemur eflaust fáum á óvart. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×