Lífið

Friðrik Dór er klár í slaginn með Maríu

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta var bara lauslega rætt á laugardagskvöldið og ég er alveg opinn fyrir því að fara til Vínar, er það ekki bara frábær borg?,“ segir Friðrik Dór. Honum stendur til boða að syngja bakraddir með Maríu Ólafsdóttur í lokakeppni Eurovision sem fram fer í höfuðborg Austurríkis í maí.

Þau sungu hvort sitt lagið eftir þremenningana í StopWaitGo í úrslitaeinvígi Söngvakeppni Sjónvarpsins síðastliðið laugardagskvöld. Þar hafði María betur með laginu Unbroken.

„Já já, ég er klár í þetta verkefni en hef samt ekki rætt þetta almennilega við þá í StopWaitGo,“ segir Hafnfirðingurinn Friðrik Dór í samtali við Vísi.

Sjá einnig: Gleymdu milljón króna ávísun

Fram kom í Kastljósi í gær, þar sem rætt var við Ásgeir Orra Ásgeirsson, liðsmann StopWaitGo, og Maríu, að Friðrik myndi hugsanlega koma fram með söngkonunni. Helga Arnardóttir spurði út í sögusagnir um mögulega aðkomu Friðriks í Vín.

„Það þyrfti eiginlega að fá það á hreint sem fyrst því við höfum allavega fengið þessa spurningu nokkuð oft núna og það væri forvitnilegt að vita hvort hann væri til í það. Það væri góð kynning fyrir hann,“ sagði Ásgeir Orri um málið. Friðriki standi það svo sannarlega til boða að sögn Ásgeirs.

„Vínarborg er víst falleg borg og auðvitað væri ég til í að fara með atriðinu út,“ segir Friðrik Dór. Því virðist fátt koma í veg fyrir það að Friðrik verði á sviðinu í Vínarborg í maí.

Sjá einnig: María vann með 15 þúsund atkvæða mun

En er Friðrik búinn að jafna sig eftir laugardagskvöldið?

Fljótur að jafna sig

„Já, ég var nú fljótur að jafna mig. Ég er mikill keppnismaður og bjóst alveg við því að ég myndi fara í gríðarlega mikla fýlu ef ég myndi tapa. En svo gerðist það ekki. Þetta var allt bara svo skemmtilegt og StopWaitGo hópurinn var orðinn svo mikil liðsheild. Ég var bara rosalega ánægður fyrir hönd Maríu.“

Friðrik segir að það hafi verið mjög svo skemmtilegt að taka þátt í svona keppni.

„Mér fannst ofboðslega vel að þessu staðið og náttúrulega gaman að það skyldi ganga svona vel. Maður fann fyrir miklum stuðningi og mér fannst einnig gaman að fylgjast með hvað þetta er mikið hitamál fyrir marga.“

Oft á tíðum er litið nokkuð niður á Eurovisionkeppnina og þá sérstaklega í tónlistarbransanum hér á landi en hvað finnst Friðriki um slíka „fordóma“?

„Mín regla í lífinu er bara að vera opinn fyrir öllu. Ég held að það sé miklu betra að ákveða ekki neitt fyrirfram og ákveða bara hlutina þegar þeir koma til manns.“

Sjá einnig: María Ólafsdóttir fer í Eurovision

En hvernig heldur Friðrik að María eigi eftir að standa sig í lokakeppninni?



María syngur lagið óaðfinnanlega

„Ég held að henni eigi eftir að ganga vel. Lagið hefur fullt af góðum kostum og umfram allt flytur María það óaðfinnanlega og lagið hentar henni ótrúlega vel. Síðan er lagið þannig að það sest dálítið á heilann á manni,“ segir Friðrik Dór.

Þetta sé sama melódían nánast allan tímann en sungin áttund ofar í viðlaginu. Því sé ekki skrítið að það setjist á heilann á fólki og kostur sem er gott að hafa í Eurovision.

„Því maður hefur bara þrjár mínútur til að stimpla sig inn hjá fólki,“ segir Friðrik og bendir einnig á að lagið sé kraftmikið og fólk eigi eftir að taka eftir því í lokakeppninni. Friðrik hefur mikla trú á laginu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×