Bíó og sjónvarp

Setja flugslysamynd á bið af virðingu við aðstandendur farþega

Vísir/Getty
Gerð flugslysamyndar, um flugvél sem að hrapar í sjóinn á leið til Pekíng, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna þess hversu söguþræði myndarinnar svipar til hvarfs hinnar malasísku flugvélar MH370.

Arclight Films, framleiðslufyrirtækið að baki myndarinnar sem heitir Deep Water, segir í tilkynningu að þróun myndarinnar verði hætt í bili. Þeim finnist mikilvægt að sýna aðstandendum farþeganna sem enn er saknað virðingu.

Þegar flug MH370 hjá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri þann áttunda mars síðastliðinn gat enginn útskýrt hvernig þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið að því er virtist upp úr þurru.

Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram.

Þotan er enn ófundin.


Tengdar fréttir

Farþegaþota hvarf af radar

Vélin er á vegum Malaysian Airlines en í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að vélin hafi horfið af radar á sjöunda tímanum í gær, nokkrum klukkustundum eftir flugtak.

Hóta hungurverkfalli vegna flugvélahvarfsins

Aðstandendur kínverskra farþega malasísku farþegaþotunnar sem saknað hefur verið frá því 8. mars krefjast nánari upplýsinga frá yfirvöldum í Malasíu.

Kínverjar vilja aukinn kraft í leitina

Kínverjar krefjast þess að malasísk yfirvöld leggi meiri kraft í leitina að Boeing 777-farþegavélinni sem hvarf á laugardaginn. Um borð voru 239 manneskjur.

Farþegaflugvélin breytti um stefnu

Týnda Boeing-farþegaflugvélin í Malasíu breytti um stefnu. Samkvæmt ratsjá var hún komin hundruð kílómetra frá því svæði sem síðast var vitað um ferðir hennar. Ekkert er vitað um ástæðuna fyrir þessari dularfullu stefnubreytingu vélarinnar.

Dularfullt hvarf farþegaflugvélar

Þegar flug MH370 hjá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri síðastliðið laugardagskvöld gat enginn útskýrt hvernig þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið að því er virtist upp úr þurru. Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram. Hvað sem því líður þá er þessi þota með 239 manneskjur um borð enn ófundin

Ekkert bendir til hryðjuverka

Mennirnir tveir sem fóru með stolin vegabréf um borð í flugvél Malaysia Airlines, sem hefur verið saknað frá því á laugardag, eru taldir hafa ætlað að flytja til Evrópu.

"Allt í lagi, góða nótt"

Síðustu samskiptin á milli flugmanna malasísku farþegaflugvélarinnar sem hvarf á laugardag og flugumferðarstjórnar voru á þá leið að allt væri í himnalagi.

Flugmennirnir slökktu á fjarskiptabúnaðnum

Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, staðfesti á blaðamannafundi í morgun að flugmenn vélarinnar sem hefur verið leitað í viku hafi slökkt á fjarskiptabúnaði um borð í flugvélinni.

Farþegavél hvarf af ratsjá

Víðtæk leit stendur yfir á Suður- Kínahafi að farþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf af radar í gærkvöldi. 239 manns voru um borð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×