Bíó og sjónvarp

Gibson á toppinn

Kvikmyndin Apocalypto í leikstjórn Mel Gibson fór beint á toppinn á bandaríska aðsóknarlistanum eftir fyrstu frumsýningarhelgina. Myndin fjallar um Maya-indíána í Mið-Ameríku og er töluð á mállýsku þeirra.

Bíó og sjónvarp

Leikur ekki í Rush Hour

Belgíska buffið, Jean Claude Van Damme, hefur borið til baka orðróm um að hann muni leika vonda kallinn í grín-hasarmyndinni Rush Hour 3 á móti Jackie Chan og Chris Tucker.

Bíó og sjónvarp

Fjóla smáborgari í sjónvarp

Smáborgarinn Fjóla er aðalpersóna sjónvarpsþáttar sem tökur hefjast á í dag. Fjóla er úr smiðju Ólafíu Hrannar Jónsdóttur leikkonu, en óvenjuhátt hlutfall kvenna er við stjórnvölinn við þáttagerðina.

Bíó og sjónvarp

Axel Foley snýr aftur

Ljóst er að Eddie Murphy muni snúa aftur sem lögreglumaðurinn Axel Foley í kvikmyndinni Beverly Hills Cop 4. Eddie hefur þegar skrifað undir samning við Paramount, framleiðanda kvikmyndarinnar en óákveðið er hver leikstýrir kvikyndinni eða skrifar handritið.

Bíó og sjónvarp

Stökkpallur fyrir hæfileikafólk

Heimasíðan Youtube.com er ein sú vinsælasta á netinu. Fjöldinn allur af fólki hefur hlaðað inn myndböndum á síðuna og reyna margir að vekja á sér eftirtekt og vona að þannig verði þeir uppgötvaðir með hjálp síðunnar.

Bíó og sjónvarp

Gibson bjartsýnn

Þrátt fyrir að hafa verið mikið í fréttum undanfarið af miður góðum ástæðum er leikstjórinn Mel Gibson bjartsýnn á velgengni nýjustu myndar sinnar, Apocalypto, sem verður frumsýnd innan skamms.

Bíó og sjónvarp

Bruce Lee í nýrri mynd

Kung Fu-hetjan Bruce Lee verður í aðalhlutverki í nýrri mynd um ævi sína sem er í undirbúningi. Nefnist hún Rage and Fury. Mun það ekki koma að sök þótt Lee hafi verið látinn í 33 ár.

Bíó og sjónvarp

Stenst tímans tönn

Sýningar á Jóladagatali Sjónvarpsins, sem að þessu sinni er sagan um stjörnustrákinn Bláma og Ísafoldu eftir Sigrúnu Eldjárn, hefjast í dag. Þættirnir, sem Kári Halldór leikstýrði, voru frumsýndir fyrir fimmtán árum og endursýndir árið 1998.

Bíó og sjónvarp

Nýtt og betra Tjarnarbíó í bígerð

„Þetta er samstarf sjálfstæðu leikhúsanna og alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar, markmiðið er að reka þarna leikhús og bíóhús saman,“ segir Gunnar Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri bandalags sjálfstæðra leikhúsa.

Bíó og sjónvarp

Jackson mun víst leikstýra

Samkvæmt framleiðandanum Saul Saentz mun leikstjórinn Peter Jackson leikstýra kvikmyndinni Hobbitinn. Fyrir skömmu sagði Jackson að yfirmenn New Line Cinema vildu ekki fá hann til þess að leikstýra kvikmyndinni, þrátt fyrir velgengni Hringadróttinssögu.

Bíó og sjónvarp

Umbreytingu að ljúka

Annað kvöld verður síðasta sýning á brúðuleikverki Bernds Ogrodnik, Umbreyting – Ljóð á hreyfingu, í Kúlunni, sviði Þjóðleikhússins við Lindargötu. Verkið var frumsýnt á Listahátíð í Reykjavík á liðnu vori og hlaut feikigóðar undirtektir gagnrýnenda og leikhúsgesta.

Bíó og sjónvarp

Sagað í sama knérunn í þriðja sinn

Hryllingsmyndin Saw náði miklum vinsældum árið 2004. Þetta var frekar einföld og ódýr mynd sem kom með ferskan andvara inn í staðnaðan hryllingsmyndabransann enda fóru höfundar hennar frumlegar leiðir til þess að skelfa áhorfendur og vekja óhug í hjörtum þeirra.

Bíó og sjónvarp

Ráðamenn þjóðarinnar hafi hægt um sig

„Þetta hefur gengið frábærlega, smá snurfus eftir en stærstu tökunum er lokið," segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Áramótaskaupsins, en tökum á því lauk á þriðjudagskvöld. Tökuliðið barðist við vind og kulda upp á Kleifarvatni en Reynir segir að þetta hafi passað fullkomlega við atriðið.

Bíó og sjónvarp

Nótt úlfanna fer á hvíta tjaldið

Norski krimmahöfundurinn Tom Egelands á íslenska þýðingu á markaði þessa hausts. Spennusöguna Nótt úlfanna sem hann sendi frá sér í fyrra þar sem lýst er hertöku og gíslatöku flugumanna frá Tjetsíu. Tilkynnt var á miðvikudag að nú yrði ráðsit í að kvikmynda þessa sögu og væri veittur til þess verks stórstyrkur úr Norska kvikmyndasjóðnum, næ hundrað miljónir íslenskra króna.

Bíó og sjónvarp

Jólaguðspjallið á svið á Grand Rokk

„Jósef frá Nasaret er sennilegra með kokkálaðri mönnum fyrr og síðar," segir Lísa Pálsdóttir, útvarpskona og forkólfur leikfélagsins Peðið, sem frumsýnir söngleikinn Jólapera - eða helgileikurinn um Jósef frá Nasaret, á Grand Rokk á sunnudag.

Bíó og sjónvarp

Jesúbarnið og jólastríð

Jólamyndirnar eru byrjaðar að gera vart við sig í bíó og tvær slíkar verða frumsýndar á morgun. Önnur fjallar um jólameting nágranna sem endar með ósköpum en hin getur ekki orðið jólalegri enda byggir hún á frásögn Lúkasarguðspjallsins um meyfæðinguna.

Bíó og sjónvarp

Jólastjarnan

Jólastjarnan er skemmtilegur og fræðandi mynddiskur (DVD) fyrir alla fjölskylduna. Þar er að finna 80 mínútur af fjölbreyttu efni sem byggir á boðskap jólanna. Að útgáfunni koma ýmsir lista- og fræðimenn í leikstjórn Gunnars I. Gunnsteinssonar en framleiðandi mynddisksins er Anna María Sigurðardóttir.

Bíó og sjónvarp

Enn leitað að jólunum

Leikritið Leitin að jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson við tónlist Árna Egilssonar naut mikilla vinsælda á fjölum Þjóðleikhússins í fyrra en verkið hefur nú verið tekið til sýninga á ný. Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem besta barnaleiksýning ársins í fyrra.

Bíó og sjónvarp

Heimildamynd um Slavoj Zizek

Í kvöld verður tekin til sýninga í ReykjavíkurAkademíunni heimildamyndin ZIZEK! En hún fjallar um heimspekinginn Slavoj Zizek sem er af mörgum talinn eins konar poppstjarna í heimi pólitískrar sálgreiningar.

Bíó og sjónvarp

Da Vinci tvö að koma

Nýjustu fregnir úr Hollywood herma að framahald af kvikmyndinni The DA Vinci Code sé væntanlegt. Búið er að greiða handritshöfunduinum Akiva Goldman næstum fjóra milljón dollara fyrir að skrifa handritið að framhaldsmynd, en að öllum líkindum verður bókin Englar og djöflar sem verður fyrirmyndin.

Bíó og sjónvarp

Samúræjar með sexhleypur

Vestrinn The Magnificent Seven er nú fáanlegur í veglegri tveggja diska útgáfu. Þessi stjörnum prýdda mynd er fyrir löngu orðin sígild og er almennt talinn síðasti vestrinn af gamla skólanum en Sergio Leone kom í kjölfarið til sögunnar og endurskilgreindi kvikmyndagreinina.

Bíó og sjónvarp

Ófeigum verður ekki í hel komið

Hasarmyndin Die Hard sló hressilega í gegn árið 1988 og ekki að ósekju þar sem um frábæra hasarmynd er að ræða. Bruce Willis sýndi þarna á sér nýja hlið eftir að hafa gert það gott í gamanþátttunum Moonlighting. Hann hefur verið einn helsti harðhausinn í Hollywood frá því hann stútaði 12 hryðjuverkamönnum í Nakatomi byggingunni, berfættur í hvítum hlýrabol.

Bíó og sjónvarp

Fettuchini og framhjáhald

Ítalir hafa oftar unnið óskarsverðlaun fyrir bestu erlendu mynd en nokkur önnur þjóð, þótt Frakkar hafi oftar verið tilnefndir. Þrátt fyrir það er sorglega sjaldgæft að ítalskar myndir rati hér í bíó. Úr því er þó bætt þessa dagana, því ítölsk kvikmyndahátíð stendur nú yfir í Háskólabíói. Sérstakri athygli er beint að leikstjóranum Pupi Avati.

Bíó og sjónvarp

Ævintýrið um Augastein

Leikhópurinn Á senunni kemur enn aftur með jólaleiksýninguna Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson. Tvær almennar sýningar verða, sunnudagana 10. og 17. desember kl. 16.00 í Tjarnarbíói í Reykjavík.

Bíó og sjónvarp

Mýrin slær aðsóknarmet

Mýrin heldur áfram sigurgöngu sinni og er orðin aðsóknarmesta mynd ársins, hefur slegið út kafla tvö í þríleik Disney um afturgengna sjóræningja í Karabíska hafinu. Þegar þetta er ritað um miðjan dag á sunnudegi hafa sjötíu þúsund kvikmyndahúsagestir séð gerð Baltasar Kormáks af sakamálasögu Arnaldar Indriðasonar.

Bíó og sjónvarp