Bíó og sjónvarp

Jólastjarnan

Jólastjarnan er skemmtilegur og fræðandi mynddiskur (DVD) fyrir alla fjölskylduna. Þar er að finna 80 mínútur af fjölbreyttu efni sem byggir á boðskap jólanna. Að útgáfunni koma ýmsir lista- og fræðimenn í leikstjórn Gunnars I. Gunnsteinssonar en framleiðandi mynddisksins er Anna María Sigurðardóttir.

Á jólastjörnunni er margskonar efni sem tengist jólum og aðventunni í máli, myndum og söng. Jóhanna Vigdís Arnardóttir syngur jólalag og les sögu um stjörnuna skæru eftir Herdísi Egilsdóttur. Herdís Egilsdóttir leiðbeinir við jólaföndur, sr. Ása Björk Ólafsdóttir rifjar upp sögu aðventunnar, Árni Björnsson þjóðháttafræðingur svarar spurningum barna um jólin á Íslandi í gamla daga. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson flytur jólahugvekju og Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur flytur jólalög. Upptökur fóru fram í Listasafni Einars Jónssonar, Fríkirkjunni í Reykjavík og Árbæjarsafni.

Jólastjarnan er allt í senn hátíðleg, fræðandi og notaleg upplifun allrar fjölskyldunnar á raunverulegum tilgangi jólanna.

Jólastjarnan fæst í öllum verslunum Hagkaupa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×