Bíó og sjónvarp

Heimildamynd um Slavoj Zizek

Heimildamynd um heimspekinginn Slavoj Zizek í leikstjórn Astra Taylor verður sýnd í kvöld, fimmtudaginn 30. nóvember, kl. 20.

ReykjavíkurAkademíunni, JL-húsinu, 4. hæð (Hringbraut 121, 107 Rvk.) Aðgangur ókeypis

Haukur Már Helgason, heimspekingur og rithöfundur fylgir myndinni úr hlaði.

Slavoj Zizek er fæddur í Ljubljana, Slóveníu, 1949. Eftir nám og akademískan feril í heimspeki, sálgreiningu og félagsfræði á heimaslóðum og í París sóttist hann eftir forsetaembætti í heimalandi sínu árið 1990, en hlaut ekki kosningu. Þá hófst einhver mikilvirkasti útgáfuferill heimspekings á síðari tímum, en Zizek hefur gefið út rétt undir 20 titla á síðustu 16 árum og orðið eins konar poppstjarna á evrópskum og bandarískum kampusum, fyrir skrif sín og fyrirlestra. Skrif hans einkennast af pólitískri róttækni og hamslausum orðaflaumi. Óðamálið grundvallast einkum á tveimur höfundum, eða höfundatvennum: Lacan (og Freud) og Marx (og Hegel).

Myndin sem Kviksaga tekur nú til sýninga er unnin í fullu samstarfi við heimspekinginn, sem tilraun til að nálgast bæði heimspeki hans og persónu, og að segja mætti til að hvort tveggja í senn afhjúpa og styðja við stöðu Zizeks sem óskráðs poppkonungs í heimi pólitískrar sálgreiningar við upphaf 21. aldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×