Bíó og sjónvarp

Sagað í sama knérunn í þriðja sinn

Sem fyrr er þó auðvitað ekkert eins og það sýnist og sjúkar áætlanir Amöndu og Jigsaw teygja sig lengra en nýjustu fórnarlömbin geta látið sig óra fyrir.
Sem fyrr er þó auðvitað ekkert eins og það sýnist og sjúkar áætlanir Amöndu og Jigsaw teygja sig lengra en nýjustu fórnarlömbin geta látið sig óra fyrir.

Hryllingsmyndin Saw náði miklum vinsældum árið 2004. Þetta var frekar einföld og ódýr mynd sem kom með ferskan andvara inn í staðnaðan hryllingsmyndabransann enda fóru höfundar hennar frumlegar leiðir til þess að skelfa áhorfendur og vekja óhug í hjörtum þeirra.

Vinsældir myndarinar urðu til þess að framhaldsmyndinn Saw II var hrist fram ári síðar og nú er hann mættur þriðja árið í röð í Saw III.

Jigsaw er á síðasta snúningi að þessu sinni og bíður dauðans undirlagður af krabbameini. Krankleikinn hindrar hann þó ekki í því að halda illvirkjum sínum áfram þar sem, Amanda, eitt af fáum fórnarlömbum hans sem lifði þrautir hans af hefur gerst lærlingur hans.

Skötuhjúin ræna að þessu sinni lækninum Lynn sem fær að halda lífi svo lengi sem hún getur haldið Jigsaw gangandi en á meðan hún framlengir jarðvist sína með því að hjúkra illmenninu reynir Jeff, annað fórnarlamb, að leysa þraut að hætti Jigsaw á öðrum vettvangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×