Viðskipti innlent

Eini fjárhagslegi ávinningur þýska bankans einnar milljón evru þóknun

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, og Peter Gatti, fulltrúi Hauck & Aufhäuser, handsala kaupin á Búnaðarbankanum árið 2003.
Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, og Peter Gatti, fulltrúi Hauck & Aufhäuser, handsala kaupin á Búnaðarbankanum árið 2003. fréttablaðið/gva
Því fór fjarri, og stóð aldrei til, að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi verið raunverulegur fjárfestir þegar 45,8 prósenta eignarhlutur ríkisins í Búnaðarbankanum var seldur árið 2003, að mati rannsóknarnefndar Alþingis. Af gögnum nefndarinnar verður ekki séð annað en að eini fjárhagslegi ávinningur bankans hafi takmarkast við þóknun að fjárhæð ein milljón evra.

Telur nefndin ljóst að sú þóknun hafi verið endurgjald fyrir að koma fram sem fjárfestir í BúnaðarbankaÍslands hf. í gegnum Eglu hf. þótt bankinn væri alls ekki raunverulegur fjárfestir.

Bankinn var kynntur til sögunnar í aðdraganda sölunnar á Búnaðarbankanum sem virtur og erlendur banki sem kæmi að kaupum S-hópsins svokallaða í gegnum eigu á helmingshlut í Eglu hf.

Í skýrslu rannsóknarnefndar, sem kynnt var í dag, segir að nokkrum klukkustundum áður en fulltrúi Hauck & Aufhäuser hafi undirrtað samningana við íslenska ríkið hafi bankinn skuldbundið sig fyrirfram til að selja Welling & Partners, aflandsfélagi að meirihluta í eigu Ólafs Ólafssonar, hlut sinn um leið og unnt var.

Um leið firrti þýski bankinn sig allri áhættu og von um hagnað af þeirri fjárfestingu sem bankinn hafði tekið þátt í opinberlega að nafninu til.

Er það mat rannsóknarnefndarinnar að aðkoma bankans hafi aðeins verið til málamynda og tímabundin.

„Eignarhald Hauck & Aufhäuser í Eglu hf., og þar með eignarhald á hlutum í Búnaðarbankanum en síðar Kaupþingi Búnaðarbanka hf. og KB banka hf. í gegnum það félag, var aðeins til málamynda og tímabundið. Aðrir aðilar fjármögnuðu í reynd, báru alla áhættu og áttu alla hagnaðarvon af þessum viðskiptum í nafni þýska bankans. Þýska bankanum var tryggt algert skaðleysi af þátttöku sinni í þeim, hann tók enga fjárhagslega áhættu með þeim og fjárhagslegir hagsmunir bankans af þeim takmörkuðust við umsamda þóknun sem kveðið var á um í baksamningunum.“

Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ólafur Ólafsson við rannsóknarnefndina: ,,Bara I´m sorry“

Enginn þeirra fjögurra einstaklinga sem rannsóknarnefnd Alþingis boðaði til skýrslutöku vegna rannsóknarinnar á einkavæðingu Búnaðarbanka Íslands og aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser mætti til skýrslutöku á vegum nefndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×