Innlent

Dauði hrossanna ekki rakinn til vanrækslu

Stefán Árni Pálsson skrifar
12 hross fundust drukknuð í Bessastaðatjörn 20. desember 2014.
12 hross fundust drukknuð í Bessastaðatjörn 20. desember 2014. vísir/vilhelm
Matvælastofnun hefur lokið rannsókn á drukknun hrossa í Bessastaðatjörn. Að mati stofnunarinnar er slysið ekki rakið til vanrækslu umráðamanna á reglum um velferð hrossa en þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Matvælastofnun rannsakaði aðbúnað og umhirðu hrossa í beitarhólfi á vegum hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi, sem telst vera ábyrgðaraðili hrossanna í þessu tilviki. Tilefnið var að 12 hross fundust drukknuð í Bessastaðatjörn 20. desember 2014.

„Alls höfðu 55 hross verið sett í beitarhólfið til haustbeitar frá 1. september 2014 og var venjan að smala hrossunum síðasta laugardag fyrir jól á hverju ári. Framkvæmd var skoðun á 14 hrossum sem deilt höfðu beitarhólfinu með hestunum sem drápust til að meta ástand hrossanna. Ástand hrossanna gaf ekki til kynna að skort hafi á beit, vatn eða næringu fyrir hrossin í beitarhólfinu,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að sunnan megin í landinu sé trjábelti og gamlar mannvistarleifar nálægt hliðinu við sjóinn að vestanverðu.

„Náttúrulegt skjól er því til staðar í beitarhólfinu en skv. reglugerð nr. 910/2014 um velferð hrossa skulu hross sem ganga úti geta leitað skjóls fyrir veðri og vindum.“

Það sé skylt skv. sömu reglugerð að hafa eftirlit með útigangi hrossa að lágmarki einu sinni í viku en auk þess er kveðið á um aukið eftirlit t.d. við slæmar veðuraðstæður.

„Að sögn forráðamanna Sóta er litið til hrossanna á 3 – 8 daga fresti yfir beitartímann af hálfu hestamannafélagsins Sóta auk þess sem eigendur líta af og til eftir hestum sínum. Fyrir smölun 20. desember hafði verið litið til hrossanna 13. og 14. desember skv. upplýsingum Sóta. Þá voru öll hrossin í haganum og ekkert óeðlilegt að sjá að mati þeirra sem kíktu á hrossin.“

Alla jafna standa hestar í góðu ástandi vel af sér óveður að vetrarlagi og er fáheyrt að slys af þessum toga eigi sér stað.

„Óljóst er hvað hefur valdið því að hrossin ráku út á ísinn en svo virðist sem að hættulegar aðstæður hafi skapast við það að tjörnina lagði, með ótraustum ís snævi lögðum, samhliða miklu veðuráhlaupi á dimmasta tíma ársins. Hins vegar verður ekki séð að umráðamenn dýranna hafi gerst brotlegir á ákvæðum reglugerðar um velferð hrossa. Matvælastofnun hefur birt skýrslu um niðurstöður rannsóknarinnar sem er aðgengileg hér að neðan.“


Tengdar fréttir

Tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn

Svo virðist sem hestarnir hafi farið út á ísinn og hann látið undan. Einar Bollason hjá Íshestum segir málið skelfilegt og að starfsmenn séu allir í losti vegna málsins.

„Þetta er brot á dýraverndarlögum“

Lögfræðingur með dýrarétt sem sérsvið segir að eigendur og umsjónarmenn hestanna sem drukknuðu í Bessastaðatjörn í síðustu viku hafi orðið uppvísir að hirðu- og kæruleysi.

Rannsókn á lokametrunum

Rannsókn á tildrögum þess að tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn þann 21. desember er á lokametrunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×