Bíó og sjónvarp

Baltasar leikstýrir myndinni um leiðtogafundinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikstjórinn Baltasar Kormákur leikstýrir kvikmyndinni Reykjavik samkvæmt heimildum Vísis. Myndin fjallar um leiðtogafund Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna og Michael Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, sem fram fór í Höfða árið 1986. 

Viðræður hafa staðið yfir við Baltasar síðan um mitt þetta ár og nú ku samningar vera í höfn. Ridley Scott átti upprunalega að leikstýra myndinni en í ágúst árið 2012 var það tilkynnt að Mike Newell myndi setjast í leikstjórastólinn. Í maí á þessu ári sagði tímaritið Variety hins vegar frá því að viðræður væru hafnar við Baltasar.

Cristoph Waltz fer með hlutverk Gobachev í myndinni en Michael Douglas leikur Reagan.

Ekki náðist í Baltasar við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Kvikmyndin Reykjavik - Stór mynd með stórum stjörnum

„Við erum búinn að vera að vinna í þessu verkefni mjög lengi og höfum sinnt mikilli rannsóknarvinnu. Við höfum rætt við fólk sem kom að þessum fundi, bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og Rússlandi,“ segir Stewart MacKinnon, einn af aðalframleiðendum kvikmyndarinnar Reykjavik.

Leiðtogafundurinn gott efni í hasarmynd

Leikstjórinn Ridley Scott ætlar að gera bíómynd um leiðtogafundinn í Höfða árið 1986. Scott segir fundinn gott efni í hasarmynd. Hann hafi markað upphafið að enda kalda stríðsins, og veiti auk þess tækifæri til að skoða tvo af áhrifamestu leiðtogum 20. aldarinnar.

Vill frumsýna myndina um leiðtogafundinn á næsta ári

Stórleikstjórinn Ridley Scott segist eiga von á því að hægt verði að frumsýna myndina um leiðtogafundinn í Höfða snemma á árinu 2009. Nú er verið að skrifa handritið að myndinni, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum Hollywood Reporter.

Reykjavík verður kvikmynd um sigur mannsandans

Kvikmyndin Reykjavík verður um sigur mannsandans að sögn Mike Newell, sem mun leikstýra þessari stórmynd sem draumasmiðjan ætlar að gera um leiðtogafundinn heimsfræga sem átti sér stað hér á landi árið 1986.

Skúrkurinn úr Inglourious Basterds leikur Gorbachev í Reykjavík

Christoph Waltz, sem fékk óskarsverðlunin fyrir að leika nasistaforingja í myndinni Inglourious Basterds mun leika Mikhail Gorbachev, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna, í myndinni Reykjavík. Það er Mike Newell sem leikstýrir myndinni, en eins og áður hefur komið fram mun Michael Douglas leika sjálfan Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Eins og fram kemur á vefnum Variety fjallar myndin um leiðtogafundinn í Höfða, sem haldinn var árið 1986 og er oft sagður hafa markað upphafið af endalokum Kalda stríðsins.

Kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða í undirbúningi

Framleiðendur í Hollywood eru að undirbúa kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða. Hugmyndir eru um að Warren Beatty leiki Ronald Reagan og Anthony Hopkins leiki Mikael Gorbatsjov. Fulltrúar Clints Eastwoods og breska leikstjórans Ridleys Scott hafa fundað með fulltrúum Reykjavíkurborgar um málið.

Leiðtogafundurinn á hvíta tjaldið

Breski leikstjórinn Ridley Scott virðist hafa tekið miklu ástfóstri við Ísland. Samkvæmt erlendum kvikmyndavefjum tókust samningar milli framleiðslufyrirtækisins Headline Pictures og Scotts á kvikmyndahátíðinni í Cannes um að hann myndi leikstýra kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík.

Michael Douglas kemur líklega til Íslands

Viðræður standa nú yfir við stórleikarann Michael Douglas um að hann taki að sér að leika Ronald Reagan í nýrri kvikmynd sem mun fjalla um leiðtogafund Reagans og Gorbachev í Reykjavík árið 1986.

Höfði enn opinn fyrir Hollywood

Einhver bið verður á því að kvikmynd um leiðtogafund Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov í Höfða árið 1986 verði gerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×