Fótbolti

Ancelotti: Misstum einbeitinguna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ítalinn var ekki ánægður með sína menn eftir leikinn í gær.
Ítalinn var ekki ánægður með sína menn eftir leikinn í gær. Vísir/Getty
Carlo Ancelotti, knatspyrnustjóri Real Madrid, var ósáttur með sína menn eftir 4-2 tap gegn Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi.

Evrópumeistararnir komust í 2-0 með mörkum frá Sergio Ramos og Gareth Bale, en Baskarnir svöruðu með tveimur mörkum frá David Zurutuza og einu frá Inigo Martinez og Carlos Vela.

Ancelotti sagðist að einbeitingu sinna manna hafi verið ábótavant í leiknum:

„Við þurfum að breyta viðhorfi okkar og einbeitingu í svona leikjum. Þegar þú ert kominn í 2-0 þarftu að sýna einbeitingu til að klára leikinn. Eitthvað þarf að breytast og það mun breytast,“ sagði Ancelotti eftir leikinn og bætti við.

„Það er ekki auðvelt að leggja mat á leikinn, því þetta voru í raun tveir leikir. Við spiluðum mjög vel fyrsta hálftímann. En síðasti klukkutíminn var mjög slæmur af okkar hálfu.

„Við héldum að leikurinn væri búinn. Þetta tap svíður sárt, því mér líkar ekki við liðið sem spilaði síðasta klukkutímann.

„Stærsta vandamálið var að við vörðumst ekki nógu vel til að halda forskotinu. Leikurinn breyttist, við vörðumst illa og jafnvægið í liðinu fór.“

Angel Di Maria og Xabi Alonso yfirgáfu Real Madrid í síðustu viku. Ancelotti segir það ekki hafa skipt sköpum hvað úrslit leiksins gegn Sociedad varðar.

„Það var ekki vandamál að missa einn leikmann, vandamálið var að við köstuðum frá okkur tveggja marka forystu,“ sagði Ancelotti sem neitaði að skella skuldinni á nýju leikmennina, James Rodriguez og Toni Kroos.

„James og Kroos þurfa tíma. Þeir hafa aðlagast vel. Leikur sem þessi er erfiðari fyrir nýja leikmenn en hina.“

Real Madrid mætir Spánarmeisturum Atletico Madrid 13. september í næsta leik sínum í deildinni.


Tengdar fréttir

Ronaldo og Kessler best í Evrópu

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, og Nadine Kessler voru kjörin besta knattspyrnufólk Evrópu nú rétt í þessu, en athöfnin fór fram strax á eftir drættinum í Meistaradeild Evrópu.

Manchester United borgar 59,7 milljónir punda fyrir Di Maria

Manchester United gekk í kvöld á kaupunum á argentínska kantmanninum Angel Di Maria en United setur nýtt breskt met með því að borga 59,7 milljónir punda fyrir hann. Þetta kemur fram á enskum fréttamiðlum í kvöld.

Ancelotti: Di Maria fer en ekki Khedira

Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri spænska stórliðsins Real Madrid staðfesti við fjölmiðla að Angel di Maria sé á leið frá félaginu en hann sagði jafnframt að Þjóðverjinn Sami Khedira fari hvergi.

Hernandez orðaður við Real Madrid

Samkvæmt heimildum SkySports hafa Manchester United og Real Madrid komist að samkomulagi um að Real Madrid fái Javier Hernandez á láni út tímabilið.

Di Maria: Ég er kominn til að hjálpa til

Angel Di Maria hélt sinn fyrsta blaðamannafund sem leikmaður Manchester United í dag en United gerði hann að dýrasta leikmanni Bretlandseyja þegar félagið keypti hann á 59,7 milljónir punda frá Real Madrid í vikunni.

Benzema og Ronaldo skoruðu í sigri Real

Karim Benzema og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk Real Madrid sem vann 2-0 heimasigur á nýliðum Cordoba í 1. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×