Viðskipti innlent

Álversdeilan: Ræðst í næstu viku hvort gripið verði til aðgerða

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
VÍSIR/VILHELM
Verkalýðsfélögin í álverinu í Straumsvík segja til greina koma að grípa til aðgerða nái fyrirskipun aðalforstjóra Rio Tinto um launafrystingu allra starfsmanna fram að ganga. Félögin búast við svörum frá stjórninni þess efnis eftir helgi, að sögn Guðmundar Ragnarssonar, formanns Félags vélstjóra og málmtæknimanna.

„Ef þessi stefna fyrirtækisins á heimsvísu á að framkvæmast hér þá liggur það ljóst fyrir að það er ekki verið að fara að semja um eitt eða neitt. Þá höfum við lítið annað að gera en að fara í aðgerðir, það segir sig alveg sjálft,“ segir Guðmundur.

Hann segir það ekki ljóst að svo stöddu hvers eðlis aðgerðirnar verði, hvort sem um allsherjar- eða skæruverkföll verði að ræða, eða þá yfirvinnu eða útflutningsbann. Það muni eflaust ráðast þegar fundað verði hjá ríkissáttasemjara á mánudag.

Álversdeilan hefur nú staðið yfir í rúmt ár. Samninganefnd ÍSAL lagði fram tilboð sem rann út nú um áramótin en verkalýðsfélögin sögðust ekki geta sætt sig við ákvæði í samningnum um aukna heimild fyrirtækisins til verktöku. Deiluaðilar settust við samningaborðið á föstudag þar sem það var formlega tilkynnt að tilboðið hefði verið dregið af borðinu.

„Við erum svolítið í lausu lofti með þetta eins og er en á síðasta fundi hjá ríkissáttasemjara var okkur tilkynnt um að allt sem lagt hefur verið fram undanfarið ár hafi verið dregið til baka. Þá var okkur sagt að nú sé beðið eftir upplýsingum frá móðurfyrirtækinu um hvort boðskapur forstjórans um engar launahækkanir í allri samstæðunni næðu til Íslands eða ekki. Þannig að við í rauninni erum að bíða eftir einhverjum boðskapi frá stjórnendum suðurfrá og Samtökum atvinnulífsins um næstu skref,“ segir Guðmundur.


Tengdar fréttir

Fjöldi reyndra starfsmanna hafa sagt upp í álverinu

Fjöldi starfsmanna með áralanga starfsreynslu í álverinu í Straumsvík hafa sagt upp störfum þar undanfarnar vikur. Talsmaður starfsfólks segir það langþreytt á margra mánaða kjarabáráttu og vill að verkalýðsfélögin setji aukinn þunga í að leysa málin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×